Morgunblaðið - 31.12.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000 43
FRÉTTIR
Afmælisár í Garðabæ 2001
25 ár síðan bær-
inn fékk kaup-
staðarréttindi
má nefna skíðaviku Garðabæjar
í febrúar en þá verður Garðbæ-
ingum boðið á skíði í Bláfjöllum
og málþing um bæjarbrag sem
einnig verður haldið í febrúar.
Haldnir verða tónleikar þekktra
tónlistarmanna innlendra og er-
lendra og þar má m.a. nefna Vil-
bergsdaga í mars, djassdaga í
maí, tónleika Vínardrengjakórs-
ins í október og tónleika Sinfón-
íuhljómsveitar Islands í nóvem-
ber.
Sérstakur fjölskyldu- og úti-
vistardagur verður á vormán-
uðum og fölskylduhátíð verður
haldin í lok ágúst. I júní verður
opnuð blönduð sýning í Garða-
bæ þar sem sýndir verða ýmsir
munir, ljósmyndir, skipulags-
teikningar og fleira úr sögu
Garðabæjar.
Þetta er aðeins hluti af dag-
skrá afmælisársins en áhuga-
sömum er bent á að fylgjast
með upplýsingum á vef Garða-
bæjar, www.gardabaer.is þar
sem fram koma ítarlegri upplýs-
ingar þegar nær dregur hverj-
um viðburði.
Afmælisnefnd Garðabæjar
hefur unnið að undirbúningi af-
mælisársins um nokkurt skeið.
Nefndina skipa: Asdís Halla
Bragadóttir, Laufey Jóhanns-
dóttir, forseti bæjarstjórnar, og
Sigurður Björgvinsson bæjar-
fulltrúi.
Þrjú félög Búseta
sameinast
ÁRIÐ 2001 verða 25 ár síðan
Garðabær fékk kaupstaðarrétt-
indi. Þessum tímamótum verður
fagnað með fjölbreyttri menn-
ingar- og skemmtidagskrá í
Garðabæ, sem stendur allt árið.
Þegar Garðabær fékk kaup-
staðarréttindi árið 1976 bjuggu í
bænum um 4 þúsund manns.
Frá þeim tíma hefur íbúafjöld-
inn aukist stöðugt og nú búa um
8 þúsund manns í Garðabæ og
þar þrífst einnig fjölbreytileg
atvinnustarfsemi, mennta- og
menningarlíf. í tilefni afmælis-
ins þykir ástæða til að gera hið
blómlega mannlíf sem þrífst í
Garðabæ sýnilegt og auðga það
enn frekar.
Ýmis samtök, stofnanir,
nefndir og fyrirtæki í Garðabæ
taka þátt í hátíðarhöldunum og
lista- og íþróttafólk í bænum
lætur ljós sitt skína. I dag-
skránni taka einnig þátt leik-
skólabörn, nemendur í grunn-
skólum, skátar og eldri
borgarar auk fjölmargra ann-
arra.
Skíðavika
og málþing
Dagskrá afmælisársins hefst
1. janúar með hátíðaimessu í
Vídalínskirkju þar sem Ásdís
Halla Bragadóttir bæjarstjóri
predikar.
Meðal annarra dagskrárliða
Á FÉLAGSFUNDUM Búseta
Reykjavíkur, Búseta Garðabæ og
Búseta Mosfellsbæ dagana 27. og
28. desember s.l. var samþykkt að
sameina öll þrjú félögin undir
merkjum Búseta Reykjavík. Hið
nýja félag hefur um 2.200 félags-
menn og um 400 íbúðir í rekstri og
um 46 íbúðir í byggingu. og segir í
tilkynningu að nýir félagsmenn séu
ætíð velkomnir.
Einnig segir: „Að áliti stjórna
allra félaganna eru kostir samein-
ingar ótvíræðir. Eftir sameiningu
verður sameinað félag stærri og
sterkari íbúðaeining sem styrkir
stoðir reksturs Búseta Reykjavíkur
og er til hagsbóta fyrir félagsmenn
allra félaganna. Búseti hsf. Mos-
fellsbær og Búseti Garðabær eru á
félagssvæði Reykjavíkurfélagsins
og er það til mikilla óþæginda fyrir
félagsmenn að þurfa að greiða ár-
gjöld í mörg félög til að geta sótt
um allar þær íbúðir sem í boði eru
á félagssvæðinu.
Markmið með samruna félag-
anna er að mynda öflugra félag svo
og ná fram aukinni hagkvæmni í
rekstri."
Morgunblaðið/Þorkell
Austurbakki
styrkir barna-
deildir
AUSTURBAKKI hf. hefur ákveðið
að styrkja nokkrar barnadeildir
sjúkrahúsa um þessi jól rneð því að
-gefa heilsudýnur fyrir böm frá Bay
Jakobsen.
Barnadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri liafa þegar ver-
ið afhentar fjórar dýnur. Ámi Þór
Ámason, framkvæmdarstjóri Aust-
urbakka hf., afhenti Helgu Braga-
dóttur, hjúkrunarsviðsstjóra og
Svönu Pálsdóttur hjúkrunardeild-
arstjóra á Barnaspítala Hringsins 5
dýnur 29. desember sl. Sjúkrahús
Reykjavíkur fær á næstu dögum
fjórar dýnur til notkunar á barna-
deild sinni.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
á Akranesi
INGIBJÖRG
Pálmadóttir, heil-
brigðis- og trygg-
ingamálaráð-
herra, hefur
skipað Guðjón
Bijánsson, fram-
kvæmdastjóra
Sjúkrahússins á
ísafirði, fram-
kvæmdastjóra
Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Akranesi til næstu fimm
ára. Níu sóttu um starfið.
Sérstök nefnd, sem metur hæfi
umsækjenda um stöður fram-
kvæmdastjóra sjúkrahúsa, skv. lög-
um nr. 97/1990, mat umsækjendur
og komst að þeirri niðurstöðu að
fimm umsækjenda um fram-
kvæmdastjórastarfið uppfylltu skil-
yrði um menntun og reynslu í rekstri
og stjórnun. Að mati nefndarinnar
var Guðjón Brjánsson hæfastur
þeirra, sem sóttu um starfið, stjórn
stofnunarinnar gerði tillögu um Guð-
jón.
------♦-4-4-----
Gámaþj ónustan
styrkir FLOG
GÁMAÞJÓNUSTAN hf. ákvað að
senda viðskiptavinum sínum ekki
jólakort í ár eins og venjulega hefur
verið gert. í þess stað var andvirði
korta og útsendingarkostnaðar,
samtals 150.000 kr., látið renna til
Landssambands áhugafólks um
flogaveiki (FLOG). Á myndinni af-
hendir Benóný Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Gámaþjónustunnar
hf., Jóni Guðnasyni, framkvæmda-
stjóra FLOG, gjöfina.
Sencfum öífum uiÓsfipía^
u/num oÁÁar Sesíu jófa~ ocj
nýdrsf ueójur ocj ósffum ýeinz
ifarsœfcfar d nýju dri
i-kmwm e
Til leigu 180 fm á 1. hæð í einni alglæsilegustu skrifstofubyggingu
landsins. Allur frágangur í algjörum sérflokki. Sérinngangur. Gegn-
heilt harðviðarparket, stórir gluggar sem gefa mikla birtu, rafstýrð
gluggaopnun og frábært útsýni yfir sundin blá. Einstök staðsetning
og góð aðkoma. Laust 1. febrúar. GSM 893 4284.
■f
ramóta
Þökkuni
vLðskipttn
á Ltðnuni árun
SAL.ON VEH