Morgunblaðið - 31.12.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 31.12.2000, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Annáll íslenskrar dægurtónlistar árið Allt að gerast - en ekki hvað? Sálin sneri aftur á árinu með fyrstu skífu í fimm ár. Morgunblaðið/Kristinn Mínus og Bibbi voru áberandi í harðkjarnarokkinu á árinu. Það var ýmislegt á seyði í íslenskri dægurtónlist áríð 2000. Arnar Eggert Thoroddsen rífjar upp það markverðasta. ÉG BIÐ ykkur fyrirfram forláts því minnið á alveg örugglega eftir að svíkja mig í einhverjum tilfellum hér á eftir og það er líkast til af- farasælast að ímynda sér þetta sem dægiljúft minningahjal yfir rjúk- andi kaffi fremur en niðurnegldan staðreyndabálk. Tónlistarárin hérlendis byrja vanalega fremur rólega, fyrstu þrír mánuðirnir fara í það að jafna sig eftir jólaáhlaupið mikla jafnframt því sem drög eru lögð að vor- og sumarútgáfunni. Fyrsta plata ársins var þó óvenju snemma á ferðinni. Hér var um að ræða frumburð eyðimerkurrokkar- anna í Brain Police, en þeir félagar hlóðu plötunni Glacier Sun í heild sinni inn á heimasíðuna sína nokkr- um sekúndubrotum eftir að 1. janú- ar gekk í garð. Gripurinn lét hins vegar ekki á sér kræla í mannheim- um fyrr en nokkrum mánuðum síð- ar. Éinnig er vert að geta plötu múmflokksins, Yesterday Was Dramatic - Today Is OK, en platan sú kom í búðir á hádegi á Þorláks- messu árinu á undan og því ekki vænieg til stórræðna í jólaöngþveit- inu. En hún fór þegar að vekja á sér verðskuldaða athygli strax á nýju ári og hefur sveitinni, ásamt plöt- unni, verið hampað nokkuð að und- anfömu af erlendum tónlistarspá- mönnum sem sérfræðingum. Rappsveit sigrar Mtísó í mars voru íslensku tónlistar- verðlaunin haldin og fóru leikar þannig að hljómsveitin Sigur Rós sópaði til sín lunganum af verðlaun- unum. Sveitin hafði heillað lands- menn upp úr skónum með plötu sinni Ágætis byrjun árinu á undan og uppskáru þarna eins og sáð var. A sama tíma var hinni rótgrónu hljómsveitakeppni Músíktilraunum hleypt af stokkunum en þessi hita- kassi hæfileikanna hefur verið í gangi allt frá árinu 1982. Rappsveit hirti fyrstu verðlaun að þessu sinni, 110 rottweilerhundar, og var þar brotið blað í sögu keppninnar sem hefur venjulegast verið hallari und- ir rokkvænni tóna. í endaðan maí fór Listahátíð Reykjavíkur svo fram og hvað okk- ur popparana varðar voru tvennir tónleikar Cesariu Evora í Broad- way án efa minnisstæðastir en þessi berfætta díva frá Grænhöfðaeyjum nýtur alveg óhemju mikilla vin- sælda hérlendis. I blábyrjun sumarsins gaf akur- eyrska sveitin 200.000 naglbítar svo út aðra plötu sína, hina merku smíð Vögguvísur fyrir Skuggaprins, sem þykir vera með því besta sem út kom á árinu. Erlendir tónlistarmenn kíktu reglubundið á klakann í ár en merkasta heimsóknin verður nú að teljast heimsókn hornspengdu of- urstjörnunnar Eltons Johns sem lék fyrir landsmenn á píanóið sitt á Laugardalsvellinum, hvorki meira né minna, hinn 1. júní. Ekki urðu allir á eitt sáttir með framkvæmd þessa risaverkefnis og mikið karp fylgdi í kjölfarið. Elton sjálfur stóð sig þó alltént með glans þrátt fyrir norðannepjuna. Mikil ritdeila upphófst um sum- armál um gildi og gagn dægurtón- listar á síðum þessa blaðs og sitt sýndist hverjum - náttúrlega. Hvítasunnuhelgin var hins vegar undirlögð af stærstu alþjóðlegu tónlistarhátíð sem ýtt hefur verið úr vör hérlendis og bar hún hið fróma heiti Reykjavik Music Festi- val. Metnaðarfull hátíð, sæmilega vel sótt og fram komu listamenn eins og Ray Davies, Ian Brown, Kent og Youssou N’Dour. Senu- þjófarnir voru hins vegar vitleys- ingamir í bandarísku bullrokks- sveitinni Bloodhound Gang sem létu öllum illum látum á vægast sagt klikkuðum tónleikum. Erlend tímarit fjölluðu aðallega um fylliríið sem hátíðinni íylgdi - sem var nú eðlilegt á íslenskan mælikvarða en virðist jafnan gefa öðrum þjóðum færi á sleggjudómum um íslenska æsku sem menningu. Jóhönnujól Dregur nú lítt til tíðinda fyrr en komið er fram á haust. Þá hrúgast hvorki meira né minna en þrjár stórar tónlistarhátíðir saman á einn mánuð. Orðið tónlist - alþjóðleg há- tíð sem hafði samslátt orða og tón- listar að tema, Iceland Airwaves - alþjóðleg tónlistarhátíð ætluð leynt og Ijóst til kynningar á íslenskum hljómsveitum og ART 2000 - al- þjóðleg raf- og tölvutónlistarhátíð. Er ekki sagt að helvíti sé þegar Englendingar sjá um matinn, Svíar um skemmtiatriðin og íslendingar um skipulagninguna? Síðasta stað- hæfingin sannaðist alla vega vel hér og þeir sem guldu fyrir það voru Jóhanna Guðrún, tíu ára, er vin- sælasta söngkona landsins f dag. Morgunblaðið/Golli Elton John hélt tónleika á Laug- ardalsvelli í júní. Morgunblaðið/Björg Söngkonan seiðmagnaða, Ces- aria Evora frá Grænhöfðaeyj- um, hélt tvenna tónleika á Broadway í tengslum við Listahátið Reykjavíkur. auðvitað fyrst og fremst áhugafólk um tónlLst. Hátíðirnar sem slíkar voru hins vegar hinar skemmtilegustu. Orðið tónlist skartaði fimm tíma mara- þonveislu fyrir eyru og augu enda þótt sumir óstöðugir hefðu verið að ærast undir það síðasta. Iceland Airwaves var hin skemmtilegasta, fór fram úti um allan bæ, og fólk rölti hýrt á brá á milli staða. Sigur Rós hélt tónleika í Fríkirkjunni og var eftirvæntingin eftir þeim við- burðinum með mesta móti. ART 2000 fór fram með ró og spekt; afar metnaðarfull og áhugaverð hátíð sem var þó, eðlis síns vegna, í sér- hæfðara lagi og seint myndi hún teljast fjölsótt. Og svo komu jólin. Á þau hlaðast um 80% allrar íslenskrar útgáfu að því er virðist, og er þá mikið um húllumhæ á öllum vigstöðvum á meðan á þeim baminginum stend- ur. Mikið var um enduútgáfur og tökulagaplötur og útgáfan þetta ár- ið ekkert voðalega beysin verður að segjast. Hin tíu ára gamla Jóhanna Guðrún stal hins vegar senunni og seldi og seldi og seldi af fyrstu plötu sinni. Annað markvert var að gras- rótarplötubúðin Hljómalind ákvað að leggja upp laupana eftir tíu ára starfsemi, harðkjarnarokkið blómstraði sem aldrei fyrr og Sálin hans Jóns míns gaf út sína fyrstu hljóðsversskífu í fimm ár, og var eftirvænting landsmanna mikil eftir þeirri skífu. Önnur sveit og ekki síður vinsæl, Skítamórall, hætti störfum og ekki má gleyma raftón- listartröllum eins og Virknihópn- um, TFA, og 360° félagsskapnum sem hafa hamast mikið í því að flytja inn erlenda tónlistarmenn og plötusnúða til landsins þótt leynt fari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.