Skírnir - 01.01.1890, Blaðsíða 62
62
VERKMENN 0. FL. ÁRIÐ 1889.
8,237. Við þingkosningar á Saxlandi fengu þingmannaefni
sósíalista 20,474 atkvæði, en 1883 fengu þeir 10,609 ; tveir
sósíalistar voru kosnir á þing. Jafnvel norður í Meklenburg
höfðu sósíalistar fjölgað, af síðustu kosningum að ráða. I
Berlín hafa þeir færzt í auka, og heppnaðist þeim að koma
6 möunurn sínum í bæjarstjórnina, er nokkur hluti hennar var
endurkosinn seint á árinu. Sem stendur halda þeir úti 38
blöðum á þýzkalandi (af þeim koma 8 út á Prússlandi, og 10
í Baiern), en auk þess hefur iðnaðarblöðum þeim, sem félög
þeirra halda úti, fjölgað frá 23 upp í 34, og koma út 90,000
eintök af þeim, en af hinum 38 pólitisku blöðum koma út
140,000. Fyrir fjórum árum voru 1021 iðnaðarfélög í land-
inu, en nú eru þau 2200, og eru félagsmenn um 122,000.
Sycitabændur eru líka að verða sósíalistar og lesa smábæklinga
þá, sem er útbýtt meðal þeirra.
Stjórnin lagði fyrir þing frumvarp til laga gegn sósíalist-
um, sem áttu að halda betur í hemilinn þeim en að undan-
förnu, og voru því harðari og strangari. Meðal annars var
þar tiltekið, að mönnum mætti vísa úr landi fyrir ýmsar
sakir, og skyldi stjórnin ráða þvi, hvort þeim væri aptur-
kvæmt, eða þeir skyldu vera útlagir alla æfi. Mörgum þing-
ipönnum þótti þetta of hart, en þó var sett nefnd í málið.
Bebel, einn af foringjum sósíalista, hélt snjalla ræðu, og
spáði, að sósíalistar mundu sýna við kosningarnar 1890, að
þeim hefði vaxið fiskur um hrygg; þingmannaefni þeirra
mundu fá hér um bil eina miljón atkvæða; 1881 fengu þeir
311,961 atkvæði, en 1884 höfðu atkvæðin fjölgað upp í
549,990, og 1887 upp í 763,128. Kosningasjóður þeirra er
okki tómur, og hefur einkum mikið fé verið sent í hann frá
Baudaríkjuuum og Sviss. A hér um bil 200 stöðum bjóða
sósíalistÍ8k þingmannaefni sig fram, og í 35 bæjum hafa vorið
stofnuð félög til að vinna að því, að sósíalistar verði kosnir inu
á þing. þannig eru líkur til, að þeir vinni víða sigur við
næstu kosningar á þýzkalandi.
Sósíaliatar hafa l(ka eflzt á Norður-Jtalíu; í Mílanó liefur
þeim lent saman við lögreglulið og herlið. I Rúmeníu sitja
tvcir sósíalistar á þingi. Á Póllandi og í Galizíu oru stór
sósíalistafélög, og ætluðu þau að halda leynilegau fund um
árelok 1889, en lögreglulið kom6t að því og tók fram fyrir
hendurnar á þeim. I Svíþjóð hefur sósíalistum fjölgað, og í