Skírnir - 01.01.1890, Síða 80
80 ÍTALÍA.
nokkru af Ítalíu og skilja hitt eptir í höndum harðstjóranna.
Eptir friðinn fóru margir Italir heim frá Lundúnum til að
eggja Ianda sína til stórræða. Crispi tók á sig gerfi Kaupa-
hóðins, rakaði af sér skegg allt, og bar blá gleraugu. Hann
fór til Sikileyjar og um hana þvert og endilangt, kenndi mönn-
um að fara með sprengiefni og sprengikúlur, eggjaði þá og
lofaði vopnum frá Genúa. Síðan kvað hann á um dag og
stund (4. okt.), nær uppreistin skyldi byrja í Palermó, og
hvernig haga skyldi öllu. Svo beið hann boðanna frá Paler-
mó í Lundvinum. f>á fékk hann boð, að uppreistinni væri frest-
að, og seinna, að hvin yrði 12. okt.; hann fór þá strax til
Me8sína í dularbúningi, en fékk boð á skip, að henni væri
frostað. Haun sneri aptur og fór til Grikklands ; var honum
gramt í geði.
Sikileyjarförin fræga 1860 er að miklu leyti Crispi að
þakka. Hann hafði grafið allar rætur undan Bourbonadæm-
inu á Sikiley, svo það féll við fyrsta högg. Hann skaut því
að Garibaldi í Genúa, að fara förina. A 25 ára afmælisdegi
frelsis Palermóbæjar, 27. maí 1885, lýsti hann í ræðu með
eldheitum orðuru þessari hreystiför, og nefndi hverja hetju,
sem í henni hafði fallið, á nafn. #Gleðin yfir frelsi voru er
blandin sorgarminningunni um þessa menn, en vopn þeirra
fylgja oss og gera oss stórhuga. Guð og Garibaldi voru með
oss; vér lentum í skothríð, og urðum nokkru seinna að ganga
í höggorustu við 8000 hermenn, því byssur vorar voru svo ó-
nýtar, að vér urðum að hlaupa að þeim». Crispi var skrifari
Garibaldis og samdi öll bréf og ávörp.
Síðan 1861 hefur Crispi setið á þingi á bekkjum vinstri-
flokksinB. Samt or hann konungsmaður, og er sagt, að hann
sé þjóðveldÍ8inaður af sanufæringu og konungssiuni sjálfum
sér i hag. Hann hefur ætíð verið mótstöðumaður stjórnar-
innar, og þó einkum eptir að Garibaldi var særður af hennar
mönnum við Aspromonte. Crispi varði þingmann einn fyrir
rétti í Flórens. þingmaðnr þessi var þjóðveldissinni og kvaðst
eigi vilja vinna konungí trúnaðareið, af því hann hefði látið
Garibaldi blæða við Aspromonte. Crispi minnti kviðinn á, að
dagurinn væri afmælisdagur frolsisins í Toskana. »1 dag get-
ið þér sýnt, hvort þér eruð frjálsir. þér hatið barizt fyrir
frslsinu, en sf þér sakfellið þsnnan mann, þ'á eruð þér mót-