Skírnir - 01.01.1890, Page 83
AUSTTJRRÍKI.
83
hún var af aðalsættum í Austurríki. Hún tók eitur, svo
henni var ekki lífvænt, og þá skaut krónprinzinn fyrst hana
og svo sjálfan sig. Hann líktist Friðriki þriðja þýzkalands-
keisara að mannkostum, og var frjálslyndur maður. Hann
var náttúrufræðingur og góður rithöfundur. Hann hafði á hendi
útgúfu mikils rits ; það var lýsing á öllum hlutum Austurrík-
is, landinu og þjóðflokkum þeim, sem á því búa, öll með lit-
myndum, og kostulegt ritsmíði. Rúdólf ritaði sjálfur nokkurn
hluta af þessu riti.
Keisari syrgði mjög dauða sonar síns, en sagði þó við gröf
hans, að hann mundi ekki leggja niður völdin vegna þess, að
þjóðflokkarnir í ríki sínu hefðu á sér svo mikla ást og mikið
traust. Bróðir keisara, erkihertogi Karl Loðvík, varð ríkis-
erfingi við dauða Rúdólfs, en kvað ætla að selja völd í hendur
syni sínum, erkihertoga Eranz Ferdínand.
I utanríkismálum var, eins og vant er, vörn en ekki sókn
af hendi Austurríkis, og það átti í vök að verjast. I stór-
veldakaflanum er sagt frá, hvernig Serbía gekk Austurríki úr
greipum, og Rússar urðu þar algjörlega ofan á, og eins í Rú-
meníu. Natalía drottning sat á Krím og fékk leyfi til að koma
heim með þeim kostum, sem stjórnin setti. þegar hvxn lenti
við Dónárbakkann í höfuðborginni Belgrad, var þar fyrir mann-
þyrping, sem fagnaði heimkomu hennar úr útlegð með ópum
og klúta- og hatta-veifingum. En hún fékk ekki að sjá kon-
uuginn, son sinn, nema með herkjum. Dreugurinn, sem er 13
ára gamall, hélt ræðu yfir henni, sem honum hafði verið kennd,
en hún sneri því öllu upp í blíðlæti. Mílan líkaði stórilla
landsvist hennar, en varð að láta sér það lynda, sem hin nýja
stjórn gerði.
I byrjun ársins átti Tisza harða rimmu við Ungverja sína
út af herlögum þeim, er verið var að ræða á þingi. í þoim
er uugverskuui foriugjum og sjálfboðaliðum gert að skyldu að
taka próf í þýzku, og það mál á að tala í hernum, svo að
foringjar og yfirmenn skilji hvorir aðra. Ungverjum þótti
þetta brot á þjóðernisrétti sfnum, og mótstöðumenn Tiszu
reyndu að steypa honum. Hiun 10. jan. byrjaði ofsínn í
þinginu og ólætin út á götunum. Tisza hefur haft forstöðu
ráðaneytis á hendi í 14 ár með snilld. Hann hefur bætt fjár-
hag laudsins, eflt iðnað og verzlun og aukið velmegun landsins.
6*