Skírnir - 01.01.1890, Page 97
AFKÍKA.
97
heiðursgjafir, sverð og fleiri dýra gripi, sátu við sinn keip,
og héldu því landi, sem þeir höfðu tekið.
Næsti Skírnir vérður að segja frá framhaldinu af þess-
ari deilu.
Ameríka-
Brasilía.
Brasilía hefur venjulega orðið út undan í Skírni, en nú hafa
orðið merkistíðindi þar, sem vert er frá að segja, og það
rækilega.
Brasilía er geysimikið land að víðáttu, sextán sinnum
eins stórt og Frakkland, stærra en Bandaríkin, 160,000 fer-
hyrningsmílur, en hefur ekki nema 14 miljónir íbúa; af
þeim eru 600,000 Indíanar. Innflutningar frá Evrópu eru að
aukast; árið 1888 fluttust 100,000 manna inn f Brasilíu. Her-
inn er lítill, 20—30,000 manna. Skuldir ríkisins eru miklar.
Kafli og sykur eru aðalvörur Brasilíumanna. Arið 1888 fluttu
þeir út vörur fyrir 460 miljónir króna. Af þeim voru 327
miljónir fyrir kaffi og 28 fyrir sykur.
Brasilía varð keisaradæmi og losnaði við Portúgal 1822.
Dom Pedro fyrsti, sonur Jóhanns Portúgalskonungs, var síð-
an keisari til 1831; þá sagði hann sjálfkrafa af sér tigninni og
fór til Portúgal. Sonur hans Dom Pedro annar kom þá til
ríkis sex ára gamall og hefur ríkt siðan, í 58 ár, lengur en
mokkur annar stjórnandi, sem nú er uppi. Hann var kvong-
aður og var kona hans af Bourbona-ættinni í Neapel. J>au
áttu eina dóttur barna. Hún er gipt greifanum af Eu, sem
er af hinni frægu Orleansætt. Keisarinn er mesta ljúfmenni
og frjálslyndur maður. Hann er hinn lærðasti maður og hefur
verið árum saman í Evrópu til að kynna sér vísindi og
liutir.
Frakkland hefur mikil áhrif á Brasilíu. Auðugir Brasi-
líumenn dvelja opt í París og franskar bækur eru mjög lesn-
ar í Brasjlíu. Blaðamenn í landinu fóru að verða berorðir
um, að ekki yrði hundrað ára afmæli hinnar tniklu stjórnar-
7