Skírnir - 01.01.1901, Blaðsíða 45
Stórbrefaland og írland.
45
hendnr bvo miklu af hlntahréfum í öllum enskum eimskipa-linum milli
Ameríku og Bretlands, að yfirráð þeirra allra yrðu í höndum einnar og
sömu yfirstjórnar í New York. En eigendum brezku línanna var mikil
vorkunn, þótt þeir seldu sum af hlutabréfum sínum og fælu Morgan um-
sjón hinna, er þeir áttu eítir, því að línur þessar hafa verið arðlitlar in
síðari ár; hafa eimskipa-linur Þjððverja verið þeim örðugir keppinautar
enda síðari árin flutt fleira fólk og meiri varning milli Bandaríkja og
Norðurálfu, en allar brezku línurnar til samans. — Morgan ætlar ekki að
setja upp farmgjald né fargjald, en spara fé með hagsýnilegari tilhögun
ferða og með því að minka stjórnar-kostnaðinn; ein yfirstjórn allra (brezku
og amerísku) linanna kostar minna en stjórn 8—9 lína áður.
Málsmetandi menn vekja nú máls á þvi í fullri alvöru, að það muni
hljóta að verða forlög Bretaveldis og Bandaríkja Norður-Ameríku aðrenna
aftur saman í eitt veldi, þó ekki 4 þann hátt, að Bandarikin gangi aftur
Bretum á hönd, heldur þannig, að Bretaveldi beiðist upptöku í Banda-
ríkin, og verði þá aðalhöfuðstaður þess mikla heimsveldis vestan hafs, en
ekki austan, því að þar sé nú orðin þungamiðja ins engil-saxneska kyn-
flokks, hvort sem litið sé á stjórnarvaldsáhrif, auð eða verzlun. — Menn
skrafa margt, en margt er ólíklegra talað en þetta. Þeir sem lifa fram
á miðja þessa öld, íá nú að sjá, hvað setur.
Ástralía.
Svo nefna Bretar meginland Eyjaálfunnar, það er sumar þjóðir kalla
Nýja Holland. Landinu er skift í þessi fylki: Queensland, New South
Wales, Vietoria, South Australia og Western Australia. En suður af
Victoria liggur eyjan TaBmania, og er fylki sér. Svo sem getið var um
í Skírni, gengu allar þessar lýðlendur1) í bandalag til að mynda Banda-
fylki Ástralíu. Stjðrnarskrá þeirra kom í gildi 1. Jan. 1901. Hertoginn
af Cornwall (sem var gerður að prinz af Wales, er hann kom heim) setti
ið fyrsta bandaþing Ástraliu i nafni föður sins, Játvarðs konungs, 9.
Maí.
Á þingi varð snarpur ágreiningur út af tolla-frumvarpi stjórnarinn-
ar. New South Wales hafði ávalt fylgt verzlunarfrelsis-stefnu, lagt að
eins toll á tóbak, áfengi, sætindi og þurkuð aldin; Victoría aftur hafði
1) Westur-Ástralía bættist síðar við. En New Zealand er enn eigi
með.