Skírnir - 01.04.1914, Page 91
Dómnr Dr. V. G. nm „Hrannir.
203
Heard rnelodies are sweet, but those unheard
Are sweeter; therefore, ye soft pipes, play on;
Not to the sensual ear, but more endear’d,
Pipe to the spirit ditties of no tone.
»Himins opnu bók« munu allir skilja sem fundið hafa mun á
■heiðum himni og kafþoku, og flestir munu renna grun í að fleiri
»hættir« geta verið aldyrir en »slóttuböud«, sem og hitt að »hátt-
ur« getur koraið fram í fleiru en tónum, t. d. í hreyfingum og
Ijósbrigðum.
E. B. kveður um ísland:
»Þar rís hún vor drotning, djúpsins mær,
með drifbjart men yfir göfugum hvarmi«.
Þetta reynir Dr. V. G. að gera hlægilegt með því að »men«
þýði »hálsfesti« eða »hálshring«. Það mun og vera hin upphaflega
merking orðsins. Skáldið hefir það hinsvegar í merkingunni »djásn«
og finst mór það róttmætt, bæði vegna þess að frummerkingin
hvorki er mjög vakandi í meðvitund manna nú, nó virðist hafa
verið það hjá forfeðrum vorum, eins og orðið »hálsmen« synir og
margar kenningar, svo sem »men storðar« um Miðgarðsorminn,
»grundarmen« og »lyngvamen« um höggorminn, »jarðarmen« o. fl.
þar sem men er haft í merkingunni »hringur«, »sveigur«. Og þeg-
ar Þrymr segir: »fjöld ák menja«, þá finst mór tvísýnt að það hafi
alt verið »hálshringir« eða »hálsfestar«.
Margt er það sem Dr. V. G. skilur ekki. Eg neyðist víst til
að skýra vísurnar sem hann þykist ekki skilja, þó fáir muni kunna
mór þökk fyrir að skýra það sem öllum ætti að vera auðskilið:
Harmaleiksins síðsta svið
sagan reikul opnar;
bjarma veikum lýsir lið,
líkin bleiku vopnar.
Hvernig í ósköpunum á að skilja þetta? spyr Dr. Y. G. Eg
spyr: Hvernig í ósköpunum á að misskilja það? Keikul sagan
opnar síðsta svið harmaleiksins. Reikul er sagan kölluð af því að
sagnirnar eru á reiki. Hún opnar nú leiksviðið þar sem síðasti
þáttur sorgarleiksins gerist, hún bregður veikum bjarma yfir liðið
og við þetta ljós sögutinar rísa »bleiku likin«, þ. e. þeir sem fóllu
þarna, hervæðast fyrir hugskotsaugum skáldsins og heyja þann
hildarleik sem ríman greinir frá. Að »lýsa liö« er engin misþyrm-
ing á málinu, þó Dr. V. G. haldi það. »Sól hefir fengit fjölskylt