Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Blaðsíða 1
Landstjórn.
Landstjórnarmálefnum íslandshefur eigtþokað mikið á-
fram næstliðið ár. íslendingar hafa enn orðið að bíða stjórnar-
bótar þeirrar, er þeir hafa þráð svo langa hríð og barizt svo
mjög fyrir, en eigi fengið; en þeir hafa þó eigi gefizt upp eða
látið neitt undan f þessu máli, heidur þvert á mót harðnað og
stælzt við hverja mótspyrnu, er þeir hafa orðið fyrir; aldrei
hefur borið á jafnmegnri óánœgju meðal íslendinga, bæði með
allt stjórnarfyrirkomulagið og sömuleiðis með einstakar stjórnar-
alhafnir, eins og næstliðið ár, og aldrei hafa þeir orðið jafnharðir
i rœðu og riti um þessi efni; á hjeraðafundum og mannamótum
hefur orðið mjög tíðrcett um gjörræði hinnar dönsku stjórnar
gagnvart íslandi, og er það örsjaldan, að nokkur hefur mælt í
móti og reynt að verja aðgjörðir hennar; blöðin hafa eigi heldur
þagað við þessum málum, en borið þungar sakir á stjórnina og
lokið hinu harðasta áfellisatkvæði á athafnir hennar að fornu og
nýju; sakargiptir þær, er íslendingar bera á stjórnina, eru Ijós-
ast og skýrast teknar fram í ritgjörð einni eptir Jón Sigurðsson,
er kom út í «Nýjum fjelagsritum* næstliðið ár, og var nefnd
• prjónakoddi stjórnarinnar». í erlendum blöðum, einkum norsk-
um og þýzkum, hefur einnig næstliðið ár verið tekinn málstaður
íslendinga gegn hinni dönsku stjórn, en þar á mót hafa
Danir reynt að bera hönd fyrir höfuð sjer og verja aðgjörðir
stjórnarinnar í dönskum blöðum.
Frá því er sagt í fyrraárs frjettum, hver urðu úrslit stjórn-
armálsins á síðasta alþingi. Tillögur þingsins um mál þetta voru
nú eigi teknar til greina heldur en fyr, en þar á mót var nokk-
uð breytt hinni œðstu valdstjórnarskipun, en á annan hátt en
þingið hafði lagt til. Þingið hafði lagt það til, að skipaður yrði
yfir ísland landstjóri með ábyrgð fyriralþingi, eða þá kon-
unglegur umboðsmaður, sem tœki sjer ráðherra, er
hefðu ábyrgð fyrir alþingi. Þetta gat konungur eigi fallizt á,
en eptir tiliögu Iögstjórnarráðherrans stofnaði hann með úrskurði
l