Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Blaðsíða 16
16
ATVINOTJVEGIR
um, að sláturfje væri venju fremur ullarlítið. D ý r b i t i ð fje var
i færra lagi, og þykir af því mega ráða, að tóur sjeu farnar að
fækka, enda hefur allmikið af þeim verið drepið með eitri. Af
sóttum á sauðfjenaði má fyrst nefna fjárkláðann; eigi
hefur enn tekizt að útrýma honum, og helzt hann við á sínum
gömlu stöðvum; hefur hans orðið vart við og við, einkum í
Mosfellssveit syðra. Bœndur í heilbrigðu hjeruðunum kringum
kláðasvæðið hafa aptur og aptur kvartað undan vogest þessum,
og skorað á yfirvöidin að gjöra gangskör að því, að útrýma 'non-
um, en yflrvöldin hafa álitið, að ótti bœnda væri ástœðulaus, og
að þeir ímynduðu sjer kláðann miklu megnari og saknæmari en
hann í raun rjettri væri; raunar buðu þau að baða hið sjúka og
grunaða fje, en það var eigi gjört nema sumstaðar. Dýralæknir
hefur og verið haldinn í Reykjavík með miklum kostnaði (600
rd. launum), en bœndur hafa kvartað um að kláðalækningar hans
kœmu að engum notum. Tilraunir þær, er beendur í hinum
heilbrigðu hjeruðum umhverfis kláðasvæðið gjörðu til að útrýma
kláðanum, lutu sumpart að því, að verja sitt fje fyrir honum,
en sumpart að því, að eyða honum sjálfum. Á hjeraðsfundi í
Rangárþingi, er haldinn var á Stórólfshvoli í Hvolhrepp 21.
maí, samþykktu Rangæingar að ganga í lið með Árnesingum og
Borgfirðingum til að verjast og útrýma kláðanum, bæði með því
að fá sem flesta hjeraðsbúa til þess að taka þátt í varðkostnaði,
og sömuleiðis með því að fá þá til að skuldbinda sig til að láta
enga sauðkind frá sjer inn á grunaða svæðið. Á hjeraðsfundi,
er Árnesingar hjeldu á Húsatóptum á Skeiðum 24. ágúst, bund-
ust þeir að nýju samtökum um það, að láta enga kind af hendi
inn fyrir varðlínuna fyr en hver kind væri skorin niður á kláða-
svæðinu sjálfu; ætluðu þeir þannig að neyða eigendur hins
grunaða fjár til að skera niður allt fje sitt; jafnframt skoruðu
þeir á þá, að gjöreyða öllu fje sínu, og buðu þeim aptur fjár-
stofn með vægu verði, svo að þeir biðu sem minnst tjón af nið-
urskurðinum. Á fundum, er Árnesingar hjeldu síðar um sum-
arið, var þetta endurnýjað, og skoruðu þeir á þingmann Gull-
bringusýslu, að stefna til sameiginlegs fundar til að leita sam-
komulags um þessi mál; hann gjörði svo, og var fundur hald-
inn í Hafnarfirði 7. nóvember; umboðsmenn Árnesinga hjeldu
því fast fram, að niður væri skorið, en eigendur fjárins synjuðu