Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Side 4
4
LANDSTJOKN.
eða er sjúkur eða fjarverandi, og konunglega auglýsing 18.
nóvember 1871, um það, að ríkisstjórn skuli falin á hend-
ur rikisarfanum í fjarvist konungs. Lögin 11. febr. 1871,
sem hjer eru birt, voru eigi sýnd síðasta alþingi nje birt
nokkurstaðar á íslandi fyr en nú.
2, Auglýsing frá lögstjórnarráðherranum, dagsett 21. febrúar
1872, um heimting á gjaldi því, sem fyrir er mælt um í
tilskipun um stofnun búnaðarskóla á íslandi 12. febr. 1872.
3, Auglýsing frá lögstjórnarráðherranum, dagsett 3. maí 1872,
um póstmál á íslandi, samkvæmt þvi, sem ráðgjört er í til-
skipuninni um póstmál á íslandi 26. febr. 1872.
Frá dómnm og dómsmálum á íslandi næstliðið ár er
fátt að telja til tíðinda. Mál þau, er dœmd hafa verið á þessu
tímabili, virðast eigi að hafa verið mörg, og fá þeirra merkileg
eða þýðingarmikil. Eigi er unnt að greina tölu þeirra mála, er
dœmd hafa verið í hjeruðum; en f landsyflrrjetti voru dœmd 21
mál; af þeim voru 8 prívatmál, en 13 sakamál og lögreglumál.
Meðal mála þeirra, er dœmd voru í landsyfirrjetti, eru einkum
2, sem geta má um. Annað þeirra reis af þvl, að fyrverandi
yfirdómari Benedikt Sveinsson á Elliðavatni gaf út athugasemdir
við fullnaðardóm landsyfirrjeltarins í málinu milli hans sjálfs og
Thomsens kaupmanns i Reykjavík um vainsveitingar og laxveiði
i Elliðaánum; í athugasemdum þessum bar hann þær sakir á
dómarana i yfirrjetlinum, að þeir hefðu af fávizku eða skeyting-
arleysi eða ásettu ráði snúið við og umhverft málinu með ó-
sannindum, rangfœrslu og afglöpum. Rjettvísin höfðaði mál
gegn Benedikt fyrir sakargiptir þessar, og var hann dcemdur í
100 rd. sekt i undirrjetti; hann skaut málinu til yfirrjettar; var
þá settur nýr yfirrjettur, en bann dœmdi á sömu leið og stað-
festi dóm undirrjettarins1. Hitt málið reis af því, að ritstjóri
Jón Ólafsson ljet prenta blað eitt í nýrri prentsmiðju, er yfir-
dómari Benedikt Sveinsson bafði stofnað á Elliðavatni, án þess
að leyfi stjórnarinnar hefði verið fengið til prentunarinnar. Fyrir
tiltceki þetta var mál höfðað gegn ritstjóranum, og var hann
dcemdur í 100 rd. sekt, fyrst í undirrjetti og síðan i yfirrjetti2.
1) í hæstarjetti er Benedikt nú dcenádur sýkn af ákærum rjett-
visiunar i máli þessu.
2■) Hæstirjeltur hefur nú staðfest dóm yfirrjettarins.