Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Síða 7
LANDSTJÓIIN.
7
apríl 1872. Við árslok höfðu lagt inn í hann 165 tnenu, þar uf
56 börn, alls 7626 rd. 60 rd., með 631 innborgun.
Frá sveitamálefnum, heilbrigðismálefnutn
og kirkjumálefnum, er stuttlega var getið í fyrra árs
frjeltum, er nú ekkert að segja, því að í þeim efnuin hefur næst-
liðið ár ekkert það gjörzt, er getandi sje.
Á embættasklpim hefur orðið nokkur brevting, og
er hún á þessa leið :
Landshöfðingjadoemi yfir fslandi var stofii-
að með konungsúrskurði 4. maí, svo sem fyr er sagt, og var
stiptamtmaður Hiirnar Finsen með öðrum úrskurði, 29. júni, skip-
aður landshöfðingi frá 1. apríl 1873. Landshöfðingi skal
hafa sömu tign, er stiptaintmaður hefur áður haft, hann skal
og hafa 4000 rd. í laun árlega og þar að auki 1000 rd. til risuu-
fjár og 1200 rd. til ritstofukostnaðar, og njóta enn fremur ýmsra
hlunninda. — Sk ri f arae mb æ 11i við 1 a n ds h öfð ingj a-
doemið var og slofnað með úrskurði 29. júní, og skyldi það
einnig byrja 1. apríl 1873. Skrifari þessi skal hafa 800 rd. lauu
2 fyrstu árin, en síðan skulu laun hans aukast um 100 rd. á
hverra tveggja ára fresti, þar til er þau eru orðin 1200rd. —
Suðuramtið og vesturamtið á íslandi skal enn fremur
leggja undir einn amtmann frá 1. apríl 1873, en þó skulu ömtiu
vera tvö eptir sem áður. Amtmaðurinn skal vera búsettur í
Reykjavík og taka þátt með biskupinum í þeim störfum, sem
stiptsyfirvöldin hafa á höndum. Hann skal hafa 2400 rd. í lauu
í fyrstu, en þau vaxa um 200 rd. fyrir hver 5 ár, þar til er þau eru
orðin 3200 rd.; 300 rd. eru honum ætlaðir til ritstofukostnaðar.
Með hinum sama úrskurði, 29. júní, er amtmaðurinn yfir vest-
uramtinu, Bergur Thorberg, skipaður amtmaður yíir báðum örnt-
unum einnig frá 1. apríl 1873.
Hið nýstofnaða póstmeistaraembætti í lleykjavík var
veitt 29. júlí Óla Finsen, póstskipsafgreiðara.
Vestmannaeyjasýsla var veitt 19. febrúar Jóni
Ásmundssyni Johnsen, kandídat í lögfrœði. — Suðurmúla-
s ý s 1 a var veitt 29. júní hinum sama. — Vestmannaeyja-
sýsla var aptur veitt 29. júní Aagaard, kandídat í lögfrœði.
— í Barðastrandarsýslu var Gunnlaugur Blöndal enn þá
settur sýslumaður.