Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Side 8
8
LANDSTJÓRN.
Til fjórða kennara við latínuskólanníReykja-
vfk var Steingrímur Thorsteinson, kandídat í málfrœði, settur
14. ágúst.
Til prófasts í Húnavatnssýslu var Ólafur Pálsson,
prestur á Melstað og dannebrogsriddari, kvaddur 2. marz. —
Til prófasts í Gullbringu- og Kjósarsýslu var Þórarinn
BöðvarssoD, prestur í Görðum á Álptanesi, kvaddur 3. apríl. —
Til prófasts i S u ð ur-Þin g eyj a rsý s 1 u var Benedikt Kristj-
ánsson, prestur i Múla í Aðalreykjadal, kvaddur 21. nóvember.
Kálfafellsstaður var veittur 8. febrúar Sigbirni Sig-
fússyni, presti að Sandfelli. — Klausturhólar voru veittir
2. april Eggerti Sigfússyni, presti á Hofi á Skagaströnd. —
Rípur var veittur 4. apríl Guttormi Vigfússyni, kandídat í guð-
frœði. — Vatnsfjörður var veittur 21. maí Þórarni Kristjáns-
syni, presti í Reykholli og prófasti i Borgarfjarðarsýslu.— Hitar-
dalur var veittur 3. júlí Jónasi Guðmundssyni, þriðja kennara
við latínuskólann i Reykjavík. — Reykholt var veitt 30. júlí
Jörgen Iíröyer, presti á Helgastöðum. — Sandarí Dýrafirði
voru veittir 22. ágúst Páli Sivertsen, kandídat í guðfrœði. — U n d-
irfell var veitt 12. september Sigfúsi Jónssyni, prestiáTjörn á
Vatnsnesi. — Tjörn áVatnsnesi var veitt 26. október Jóni
forlákssyni, kandídat í guðfrœði. — Saurbœri Eyjafirði
var veittur 2. desember Jóni Austmann, presti á Halldórsstöð-
um. — Þórður Jónassen, prestur í Möðruvallaklaustri,
og Jörgen Kröyer, prestur í Reykholti, höfðu brauðaskipti 25.
október. — Gunnlaugur Halldórsson, kandídat f guðfrœði, var
8. sept. skipaður aðstoðarprestur að Hofi i Vopnafirði.
Prestvígðir voru: kandídat Guttormur Vigfússon 16. júní,
skólakennari Jónas Guðmundsson 11. ágúst, og kandídatarnir
Páll Sivertsen og Gunnlaugur Halldórsson 8. september.
í árslokin voru óveitt: skrifaraembættið við landshöfðingja-
dœmið og rektorsembæltið við latínuskólann og enn fremur 31
prestakall, en af þeim voru 13 sameinuð til bráðabirgða við
önnur prestaköll.