Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Blaðsíða 10
10
MANNFJOLGUN.
hólm. 25. nóvember drukknuðu 2 menn við Vatnsleysuströnd.
5. desember drukknuðu 4 menn við Akranes. Enn fremur urðu
og nokkrir skipskaðar, sem eigi er greint frá í blöðunum hvar
eða hvenær hafl orðið. 7—10 manns drukknuðu íám; 3—6
menn fórust í snjóflóðum; 3—4 u r ð u ú t i í óveðrum, 1
hrapaðifyrir björg, 1 varstangaðurtilbana, og einnskautsig tilólífls.
Þess má geta hjer, að utanfarlr íslendinga hafa nokk-
uð farið í vöxt næstliðið ár. Flestir þeirra, er utan fóru, fluttu
sig ti l Am e r í k u, og seltust að í Wisconsin í norðanverðum
Bandaríkjunum, eða þar í grennd. Það ár hafa utanfarirnar þó
lítið dregið úr mannfjölguninni á íslandi, með því að þeir voru
að tiltölu fáir, sem þá fóru; en eigi er ólíklegt, að slíkar ferðir
kunni að hafa talsverð áhrif á mannfjölgunina framvegis, ef þær
fara í vöxt, eins og nú virðast allar líkur til.
Næstliðið ár hafa ýmsir inerkismenn látizt á ís-
landi, þó að bjer sje fárra getið; en þó skal nefna nokkra, er
kunnugastir voru: Skúli Vigfússon Thorarensená
Móeiðarhvoli, fyrrum hjeraðslæknir í suðausturfjórðungi landsins
og dannebrogsriddari, andaðist 1. apríl, 67 ára; hann var ein-
hver hinn merkasti og duglegasti lækuir, sem verið hefur á ís-
landi, og mjög ástsæll af landsmönnum. Ólafur Magnús- •
son Stephensen í Viðey, fyrrum dómskrifari í landsyfir-
rjettinum og jústizráð, Ijezt 14. apríl, 80 ára; hann var höfð-
ingi mikill og göfugmenni. Jens Sigurðsson, rektor við
latínuskólann í Reykjavík, andaðist 2. nóvembermánaðar, 60
ára gamall; hann var ágætur maður, samvizkusamur kennari og
dugandi skólastjóri. Af prestum dóu þrír: Jón Pálsson
M e 1 s t e ð, prestur í Klausturhólum og fyrrum prófastur í Ár-
nessýslu, 13. febrúar, 42 ára, Þorlákur Stefánsson, prest-
ur á Öndirfelli, 21. júlí, 66 ára, ogJón Einarsson Thor-
lacíus, prestur í Saurbœ í Eyjaíirði, 12. september, 56 ára.
Allir þessir prestar voru meðal hinna merkustu presta landsins nú á
dögum. Helgi Sigurðsson Melsteð, prestaskólastúdent
í Reykjavík, Ijezt 5. janúar; hann var að eins 22 ára, og hinn
efnilegasti maður. Einn skólapiltur, Jónas ÞórðarsonJón-
assen, gáfaður vel ogefnilegur, dó 25. maí, 16ára. Tveirmerkis-
kaupmenn dóueinnig: Sveinbjörn Ólafsson í Keflavík, 15.
okt., 56 ára, og Hans Sivertsen í Reykjavík,24.okt.,50ára.