Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Blaðsíða 11
ATVINNUVEGIK.
11
Atvinnuvegir.
Um leið og minnzt er á atvinnuvegina, skal hjer einnig
getið v eð u rá 11 ufar s i n s. Veðuráttufar á íslandi næstliðið
ár var eitt hið bezta, er verið hefur á þessari öld; raunar voru
vetrarhörkur miklar og langar í einstökum hjeruðum, en í flest-
um sveitum mundu menn varla að öllu samtöldu jafngóða tíð.
Framan af vetrinum 1871—72 var veðurátta allgóð sunnanlands
og vestau, en mjög breytileg norðanlands og austan, og svo var
allt til ársloka. Eptir nýár tók veður að verða nokkuð óstilltara
sunnanlands og vestanlands, en þó einkum á vesturlandi. jþó
var snjófall þar rajög lítið, og sömuleiðis á norðurlandi allt aust-
ur að Yxnadalsheiði. Milli Yxnadalsheiðar að vestan og Reykja-
heiðar að austan var aptur allmikil fannkoma í janúarmán-
uði, einkum þegará leið mánuðinn; en er lengra kom austur,
varð fannkoman minni, bæði í Norður-Í’ingeyjarsýslu og svo uni
allt austurland. Snjóflóð hlupu fram um þær mundir á nokkr-
um stöðum nyrðra, og ollu nokkru fjártjóni,einkum i Suður-Í’ing-
eyjarsýslu. Frostlítið var víðsvegar ura land framan af janúar-
mánuði, en seint í mánuðinum kom kuldakast, er náði um allt
land; í Reykjavik varð frostið mest 12 stig (eptir Réaumurs mæli),
en 20 stig á Akureyri. Bráðum hlýnaðiaptur og gjörði nú stillt
veður og frostlítil viðast*um land þar til seint í marzmánuði; þá
kom aunað kuldakast, er náði yfir allt land, en varð minnst á
austurlandi; fylgdi því fannkoma og stormar; þá rak ís undir
land nyrðra,fyrst fyrir Uornströndura, en síðan austur með öllu
landi og austur fyrir Langanes; þó varð hanu hvergi landfastur
að mun. í miðjum aprilmánuði hörfaði ísinn aptur nokkuð frá,
og brá þá veðuráttu aptur mjög til batnaðar. Síðari hluta apríl-
mánaðar og meginið af maimánuði var allgóð tið, einkum á suð-
urlandi og austurlandi; nyrðra og vestra var veðurátta nokkuð
óstilltari, og var einkum stormasamt á vesturlandL Síðast í maí
gjörði síðasta kastið, og var það allhart, en eigi langt; 29.—30.
maí var stórhríð náiega yflr allt land. Fyrstu dagana af júní-
mánuði var einnig kalt og stormar miklir, en upp frá því gjörði
hvervetna algjörðan bata. Allt þangað til hafði hafíshroði öðru
hverju sjezt fyrir norðurlandi, eu nú hvarf hann ur landsýn að
íullu og öllu. t*cgar á allt er litið, hafði veturinn verið ágætur