Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Blaðsíða 12
12
ATVINNUVEGIB.
á austurlandi og suðurlandi, og sömuleiðis í betra lagi á vest-
urlandi og meginhluta norðurlands; að vísu hafði verið nokkuð
stormasamt, en frost og fannkoma að öllu samtöldu mjög lítil.
í einum hluta landsins hafði veturinn verið bæði harður og lang-
ur, og einhver hinn lakasti, er nú hefur komið í mörg ár, en
það var í Suður-Þingeyjarsýslu, eða hjeruðunum milli Vaðlaheiðar
að vestan og Reykjaheiðar að austan. Frá veturnóttum og fram
að nýári hafði þar verið allhart, og að jafnaði harðara en í öðr-
um sveitum. Eptir nýár harðnaði þar enn meir, og upp frá því
máttu þar heita sífelld harðindi og megn snjóþyngsli allt fram
að fardögum. Harðast var hríðaráfellið í lok maímánaðar; kynngdi
þá niður feikimiklum snjó, og fennti fje víða og lömb króknuðu;
á Höfðaströnd voru fannalögin svo mikil, að prestur gekk á skíð-
um á útkirkju sína 2. júní. En nú var og veturinn á förum.
Frá fardögum (6. júní) og til höfuðdags (29. ág.) voru sífelldir
hitar og blíðviðri um allt land, og kom varla deigur dropi úr
lopti allan þann tíma. Hitinn var mestur í miðjum júlímánuði;
i Reykjavík varð hann 18 stig í skugga, en 24 stig á Akur-
eyri. í*egar leið á sumarið, tók hitinn nokkuð að þverra, en
þó mátti heita veðurblíða fram í miðjan septembermánuð. ís-
hroða hafði orðið vart seinast í ágústmánuði fyrir utan Horn-
strandir og Skagaströnd, eu hann hvarf bráðum aptur. Seinast
í ágúst og fyrst i september rigndi dag og dag, en þó svo lítið,
að þurrviðri mátti kalla um allt land fram í miðjan mánuðinn.
Eptir miðjan septembermánuð brá veðuráttu norðanlands og
austan ; komu þá köld norðanveður nyrðra með frosti og fann-
komu, en eystra gjörði austanátt með rigningum og umhleyping-
um. Sunnanlands og vestan brá fyrst veðuráttu snemma í okt-
óbermánuði, og kynngdi þá niður miklum snjó í sumum sveitum.
Um þær mundir barðnaði enn meir norðanlands og austan. l’ó
Ijetti hretviðrunum bráðum af aptur víðsvegar um land, og gjörði
góða tíð þar til seinast i októbermánuði; þá komu aptur hörk-
ur og hretviðri, er stóðu yfir þangað til í miðjum nóvember.
Eptir miðjan nóvembermánuð brá aptur lil bata, og var tíðarfar
hvervetna allgott upp frá því fram að ársiokum. Undir árslokin
var aptur farið að harðna; síðari hlutann af desember var storma-
samt víða, en veður þurrt og kalt og hreint.
Hjer virðist einnig megageta jarðskjálftanna á norður-