Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Page 18
18
ATVINNUVEGIR.
fiskilaust allt lil vertíðarloka. Um þær mundir er hætti að fisk-
ast í Faxaflóa, tók að fiskast austanfjalls, og fiskaðist allvel á
Eyrarbakka nokkra hríð. Þegar á allt er litið, var verlíðaraflinn
hvervetna fremur lítill, og enn minni en undanfarin ár, því að
bæði var hlutatala minni, og fiskurinn eigi eins vænn; hvergi
brást aflinn eins gjörsamlega og í Vestmannaeyjum, og voru
þar að eins 60 hæst í hlut eptir vetrarvertíðina; þar á mót
voru 600 hæst til hlutar á Eyrarbakka. Vorvertíðin gekk einnig
í lakara lagi sunnanlands; þó aflaðist nokkuð á Seltjarnarnesi
um nokkurn tíma í júnímánuði. í ágústmánuði aflaðist um hríð
í hinum syðri veiðistöðvum í Faxaflóa, en þó varð sumaraflinn
að öllu samtöldu mjög lítill sunnanlands. Á haustvertíðinni var
einnig Ktill afli hvervelna syðra, einkum framan af; þegar á
leið vertíðina, fiskaðist þó talsvert í sumum veiðistöðvum í Faxa-
flóa. Undir Jökli aflaðist mjög lílið framan af vetrarvertíðinni,
en nokkuð þegar á leið. Um vorið og sumarið aflaðist þar frem-
ur litið, en afbragðsvel um tima um haustið. Við ísafjarð»
ardjúp aflaðist fremur lítið allar verttðir. í Hrútafirði og
Miðfirði fiskaðist allvel fyrri hluta sumars, og nokkuð aplur
um haustið. Við Eyjafjörð var fiskiafli fremur lítill um vet-
urinn og vorið, en allgóður um sumarið, einkum að áliðnu
sumri, í ágúst og september og fram í október; upp frá því hætti
þar að fiskast; þó varð þar aptur fiskivart í desembermánuði.
Á Austfjörðum var afli í betra lagi meginið af árinu; eink-
um fiskaðist þar vel seinni hluta sumars, í ágústmánuði og
fyrri hluta septembermánaðar; þá varð hlje á aílanum um hríð,
en í októbermánuði tók aptur að fiskast, og var mokfiski fram i
nóvember.
H á k a rl s a fl i n n var næstliðið ár að tiltölu miklu betri
en fiskiaflinn. Sunnanlands var nokkrum þiljuskipum hald-
ið til hákarlaveiða um vorið, og öfluðu þau allvel; í torlákshöfn
öfluðust á einum degi í aprílmánuði 360 hákarlar, og voru þeir
metnir 1800 rd. virði. Undir Jökli aflaðist nokkuð af hákarli
um vorið. Við í s a f j a r ð a r dj ú p og fyrir Hornströnd-
um var allgóður hákarlsafli á þiljuskipum síðari hluta sumars.
Við E y j a f j ö r ð aflaðist hákarl fremur vel um vorið og fyrri hluta
sumars. ÁÁustfjörðum var hákarslaflinn í langminnsta
lagi.