Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Page 25
ATVÍNNUVEGIK.
25
kostnaðarsamar; ferðir þessar ljettu og mjög fyrir öllum vöru-
flutningi og öðrum sendingum milli hafna þeirra, er skipið fór í
milli. í’að kom til orða næstliðið ár, að leggja frjettaþráð
(telegraff) yfir ísland, og í því skyni voru dönsk herskip látin
kanna hafið fyrir sunnan land, og gjöra áætlun um, hvar hent-
ugast mundi að leggja hann. Eigi er enn kunnugt, hvern á-
rangur rannsóknir þessar höfðu, eða hvað máli þessu líður. t*að
er auðsætt, hve ómetanlegt gagn íslandi yrði að slíku, ef það
kcemist á, ekki sízt í verzlunarefnum, því að þá fyrst mundu ís-
lendingar geta rekið sjálfir verzlun sína með fullu afli; en með-
an frjettaþráður kemst eigi á, þá geta þeir eigi haft nógu greið
viðskipti við skiptamenn sína erlendis, og eigi nógu fljótt fengið
fregnir af, hvernig verzlun hagar og verðlag breytist þar á hverj-
um tíma.
í’egar litið er á verzlun íslendinga næstiiðið ár, þá verður
eigi annað sagt, en að hún hafi verið allblómleg, og er það ó-
líkt því, er var fyrir nokkrum árum; margt stendur að vísu enn
til bóta í þeim efnum sem öðrum, en hjer er þó veruleg fram-
för; á hin fcerandi fjelagsverzlun góðan þátt í því. Sumir ís-
lendingar eru mótfallnir hinni fœrandi fjelagsverzlun og álíta
hana gagnslausa, þar eð þeir hyggja, að þegar stundir líðafram,
muni scekja f sama horf sem áður, og verzlunin komast öll í
hendur einstakra manna, er þá leggi nýja einokun á; en þó að
svo yrði, þá hefur þó verzlun þessi komið íslendingum á þann
rekspöl, að varla er unnt, að þeir gætu þolað slíkt til lengdar
upp frá þessu.
iðnaði landsmanna hefur nokkuð þokað áfram næstliðið
ár, en varla .svo, að í frásögur sje fœrandi. Húsagjörð, skipa-
gjörð, smíðar, hannyrðir o. s. frv. hafa tekið nokkrum bótum.
Ýms ný verkfœri og áhöld til iðnaðar hafa verið fengin frá öðr-
um lönduin; þar til má nefna skozka ljái, er víða hafa ver-
ið fengnir og hafðir á greiðfœr tún og engjar; til þess má og
telja v a t n s v e i t i n g a r m y 1 n u þá, er fyr var getið. Geta má
og þess, að maður einn á Austfjörðum, að nafni Jónas Sí-
monarson, smiðaði sjálfur vatnsveitingavjel af hugviti sínu.
A hina norrœnu iðnaðarsýningu, erhaldin var í Kaup-
mannahöfn næstliðið sumar, voru ýmsir íslenzkir munir
sendir til sýningar, og þóttu margir þeirra vel vandaðir; sjer-