Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Page 26
26
ATVINNUVEGIR.
staklegt lofsorð feDgu þó engir íslendingar fyrir iðnað sinn, nema
Helgi Magnússon, óðalsbóndi í Birtingaholti, fyrir ágæta
tólgarverkun, Kristinn bóndi Magnússon í Engey
fyrir ágætaæ ðardúns ve rk un, og frú Guðrún Stephen-
s e n og frðken þórunn Stephensen í Reykjavík fyrir fallega
og vel gjörða íslenzka kvennbúninga.
M e n n t u n.
Merkur maður hefur sagt það um íslendinga í tilíiti til
menntunar þeirra, að þeir hefðu ríkan þjóðaranda, en ekki tíð-
aranda ; þetta á mjög vel við og lýtur til þess, að menntun þeirra
er í eðli sínu þjóðleg og styðst á gömlum merg, en fylgir eigi
að því skapi tímanum og verður eigi fyrir jafnmiklum áhrifum
af hinni nýrri heimsmenntun sem menntun margra annara þjóða.
Eptir því sem samgöngurnar hafa smámsaman greiðzt og frjáls
viðskipti við erlendar þjóðir farið í vöxt, eptir því hafa áhrif
þessi eigi að síður orðið meiri og optast til bóta. Enn sem
komið er miðar menntun íslendinga þó svo hœgt áfram, að
lítils gætir á einu ári, og þó að framfarirnar sjeu jafnan nokkr-
ar, er það fátt í þeim efnum, er sje í frásögur fœrandi.
Að því er snertir bókvísi íslendinga, þá má geta þess,
að einar 2 prentsmiðjur eru á öllu landinu, og er lítið
prenlað í báðum; þar á mót eru jafnan nokkrar íslenzkar bœk-
ur árlega prentaðar í Kaupmannahöfn. Næstliðið ár var gjörð
tilraun til að stofna nýja prentsmiðju í viðbót við hinar 2, en
sú tilraun fórst fyrir. tví var þannig háttað, að fyrverandi yfir-
dómari Benedikt Sveinsson ætlaði að setja prentsmiðju á heimili
sínu að Elliðavatni; safnaði hann talsverðum samskotum lil henn-
ar, einkum í Árnessýslu. Þegar allt var fengið, er þurfti til
prentsmiðjunnar, fórBenedikt sjálfur utan og setti á meðan fyr-
ir hana ritstjóra Jón Ólafsson ; Jón tók þegar að prenta og sendi
út frá prentsmiðjunni blað eitt, er hann kallaði «Smávegis», en