Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Síða 30
30
MF.NNTDN.
í bamaskólanum í Reykjavík voru næstliðinn vetur yfir
90 börn. Hinn fyrirhugaði barnaskóli á Hvaleyri við
Hafnarfjörð, er Þórarinn prófastur Böðvarsson í Görðum á Álpta-
nesi hefur ætlað að stofna og gefið lil jörðina Hvaleyri, hefurenn
eigi komizt á sökum fjeleysis. Alþýðuskólinn á Borðeyri
hefur heldur eigi orðið notaður sökum fjeleysis. Fyrirlestr-
ar þeir fyrir alþýðu manna, er haldnir voru í Reykjavík vet-
urinn 1871—72, hafa nú eigi orðið haldnir aptur sökum hús-
næðisleysis.
Við latínuskólann í Reykjavík varð sú breytinng næst-
liðið ár, að rektor skólans, Jens Sigurðsson, dó í öndverðum
nóvembermánuði, en yfirkennari Jón þorkelsson var skipaður í
hans stað. Enn fremur var og kandídat Steingrímur Thorstein-
son settur fastur kennari í stað Jónasar Guðmundssonar, er
sótti burtu frá skólanum. í byrjun skólaársins 1871—72 voru
lærisveinar 65 að tölu; einn þeirra dó, 8 útskrifuðust, og 4
fóru úr skóla á annan hátt; aptur komu 13 í skólann á því
tímabili, svo að við árslok 1872 voru lærisveinar 65 að tölu.
Af þeim, sem útskrifuðust, fjekk að eins einn fyrstu einkunn,
en hinir aðra einkunn.
Læknaskólakennslu í Reykjavík nutu 5 stúdentar
veturinnl871—72; af þeim tóku 3 embættispróf næstliðið sumar,
og fengu þeir allir aðra einkunn; einn bœttist aptur við um haust-
ið, svo að um árslok voru þar 3 stúdentar að nema læknisfrœði.
Prestaskólinn í Reykjavík hefur næstliðið ár fengið
meiri aðsókn, en nokkurn tíma áður, og hafa aldrei jafnmargir
stúdentar gengið á hann. I byrjun skólaársins 1871—72 voru
á honum 15 stúdentar; af þeim dó einn um velurinn, en 6
útskrifuðust um sumarið. 9 bœttust við um haustið, og einn
um miðjan vetur, svo að í árslok voru þar 18 stúdentar. Við
embættisprófið fengu 3 af stúdentum fyrstu einkunn, en 3 aðra
einkunn. 7 stúdentar tóku um vorið próf í heimspeki við
prestaskólann, og fengu 4 þeirra fyrstu einkunn, en 3 aðra
einkunn; einn þeirra var stúdent í læknisfrœði.
Við háskólann í Iíaupmannahöfn stunduðu nokkrir ís-
lenzkir stúdentar heimspeki, guðfrœði, lögfrœði, læknisfrœði og
málfrœði næstliðið ár. Próf í heimspeki tóku 2, en embættis-
próf i læknifrœði 1.