Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Page 1

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Page 1
L a i) d s t j ó i' n. J>að er hvorttveggja, að á árinu 1878 hefur fátt sögulegt gjörzt í stjórnmálum íslands, enda er rúmið í riti þessu svo takmarkað, að fljótt verður yfir að fara, og verður því að eins meðnokkrum orðum minnzt á nokkur einstök atriði. Frumvörp þau, er alþingi 1877 afgreiddi sem lög, og sem talin eru upp í fyrra árs frjettum, öðluðust flest samþykki konungs það sama ár. Nokkur þeirra öðluðust aptur fyrst laga- gildi árið 1878, og voru það þau, er hjer segir: 1. Lög um kirkjutíund í Reykjavíkur lögsagnarumdæmi (lOaur- ar af hverjum 100 krónum í virðingarverði húsa); samþ. . 27. febr.; 2. Lög um afnám konungsúrskurðar 13. marz 1833 (um húsa- leigustyrk handa lyfsalanum í Reykjavík); samþ. 27. febr.; 3. Lög um skipti á dánarbúum og fjelagsbúum, og fl.; samþ. 12. apríl; 4. Lög um vitagjald af skipum (40 aurar fyrir hverja smálest af skipum, sem hafna sig milli Reykjaness og Snæfellsjök- uls, en 20 aurar af þeim, sem hafna sig milli Snæfellsjök- uls og Horns á Hornströndum); samþ. 12. apríl; 5. Lög um lausafjártíund; samþ. 12. júlí; G. Lög um gjafsóknir; samþ. 12. júlí. Af lögum þessum eru einkum merkileg skiptalögin, sem er mikill bálkur, er yfir grípur allt það, er að skiptum lýtur, og sem áður hefur verið ásundrungu víðsvegar; og þá tíund- arlögin, er eiga að miða til þess, að gjöra tíundargjaldið ljett- ara, sanngjarnara og óbrotnara, en það áður hefur verið. Gjaf- sóknarlögin lúta að því, að takmarka veitingu gjafsókna, og af stýra þannig óþarfa-kostnaði af almannafje. Af lögum þeim, er alþingi 1877 hafði samið, voru þrjú, sem eigi náðu staðfestingu konungs. £að voru lögin um einkarjett, lögin um fiskiveiðar þegna Danakon- Fejettik frí íslandi. 1

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.