Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Qupperneq 4
4
LANDSTJÓRN.
innheimtu sóknargjaldsins; meiri hluti hennar vildi fela hana
hreppsnefndunum, en minni hlutinn sjerstökum sóknarnefndum.
Borgun fyrir aukaverk skyldi haldast, en hækka, og prestar sjálfir
hafa inr.heimtu hennar. Tekjurkirkna lagði nefndin til að yrðu
auknar, með því að af nema tíundarfrelsi jarða til kirkna, á-
kveða kirkjutíund 3/ioálnar af jarðarhundraði hverju, og lOaura
af hverjum 100 kr. í virðingarverði húsa, láta hvern utansóknar
sjóróðramann gjalda Vs alin í sætisfisk, hækka legkaup úr 6
álnum í 10 o. fl. Viðvíkjandi innheimtu kirkjugjaldsins var
sami ágreiningur sem um innheimtu prestsgjaldsins. Með til-
lití til þess, hvort hagfellt mundi vera að afhenda söfnuðunum
umsjón og fjárhald kirkna, þá áleit meiri hluti nefndarinnar
ekki vera næga ástæðu til að koma fram með uppástungur þar
að lútandi; en minni hlutinn lagði áherzlu á það, að gefa söfn-
uðunurn kost á að hafa meiri afskipti af málum sínum hjer eptir
en hingað til; samkvæmt því samdi hann frumvarp til laga um
stjórn safnaðarmála, er framkvæmast skyldi á þann hátt, að
haldnir væru safnaðarfundir cinu sinni á ári, og skipaðar sókn-
arnefndir, er skyldu vera prestunum til aðstoðar í umsjón með
söfnuðunum, og auk þess hafa á hendi umsjón yfir eigum og
fjármálum kirknanna, ef söfnuðirnir tækju við þeim. Minni
hlutinn samdi einnig frumvarp um það atriði, og lagði þar til,
að skila skyldi kirkjum í hendur söfnuðunum, ef meiri hluti
sóknarmanna vildi, og eigandi eða forráðamaður kirkju ekki
mæltu á móti, ásamt nokkrum öðrum nákvæmari ákvörðunum.
Á sýnódus, sem var haldinn í Reykjavík 4. júlí, kom
kirkna- og prestamálið eigi til orða. þ>ar var að vanda skipt
nokkrum peningum milli uppgjafapresta og prestaekkna, en
jafnframt samþykkt, að stiptsyfirvöldin skyldu eptirleiðis hafa
tilbúið frumvarp um peningaskiptingu þessa til að leggja fyrir
sýnódus, til þoss að flýta fyrir, og gefa ráðrúm til að ræða
einhver kirkjuleg mál, svo að sýnódus gæti með tímanum orð-
ið annað en nafnið eitt. Á þessum fundi var og þeim fórarni
prófasti Böðvarssyni og Hallgrími dómkirkjupresti Sveinssyni
falið á hendur að gangast fyrir því, að stofna kirkjulegt tíma-
rit.
Umboðsstjórnin gjörði nokkrar breytingar á skipun