Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 6

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 6
LANDSTJÓRN. 6 á Reykjanesiá kostnað landssjóðsins, og að nokkru leyti einnig ríkissjóðsins. Til þess að standa fyrir vitagjörðinni fjekk hún danskan verkfræðing, Rothe að nafni, og til að segja fyrir múr- verkum, danskan múrmeistara, að nafni Lyders. Vitaturninn stendur á hnúk þeim, er Valahnúkur heitir, syðst á Reykjanesi, á annað hundrað feta yfir sjávarmál. Turninn sjálfur er ná- lægt 20 fet á hæð, og gjörður úr íslenzku brunagrjóti; ofan á hann eru settar þykkar látúnsplötur með loptholum, og þar á ofan er ijóskerið skrúfað og lóðað. í því eru 15 steinolíulamp- ar, sem hver fyrir sig er felldur í íhvolfa látúnsplötu, er kastar ljósinu út á sjóinn, í hálfhring; en á land ber það enga birtu. Vitaljósið er hvítt spegilljós. J>að er 175 feta yfir sjávarfiöt, og sjest í 19 kvarttnílna fjarlægð. Vitabyggingin gekk fremur ó- greiðlega, og komst vitinn eigi í gagn fyr en 1. desember. Eptirleiðis á að loga á vitanum frá 1. ágúst til 15. maí ár hvert, og verða með fullri birtu frá 60 mínútum eptir sólarlag til 45 mínútum fyrir sólaruppkomu. Við vitann var skipaður vita- vörður með 800 kr. árlegum launum; handa honum var gjörður bær, og vegur milli vitans og bæjarins. Kostnaðurinn við vita- bygginguna og viðhald hans framvegis er ærið mikill, en aptur er búizt við miklum notum af honum fyrir sjófarendur. Á gufuskipsferðunum kringum landið var onn svo að segja engin breyting gjör, þrátt fyrir þá óánægju, sem hefur verið meðal landsmanna yfir tilhögun þeirra. Alþingi 1877 hafði samið tvær ferðaáætlanir, aðra, er það helzt kaus að fylgt yrði, en aðra til vara. J>að skoraði á stjórnina, að taka til greina aðaluppástungu sína um þetta efni, og veitti stjórninni heimild til að verja til gufuskipsferðanna 3000 kr. á ári fram yfir það, sem veitt er með fjárlögunum, ef því yrði framgengt,. Landshöfðingi mælti fastlega með aðaluppástungu þingsins, og ráðherra íslands var henni sömuleiðis meðmæltur; en málið strandaði að þessu sinni í innanríkisstjórninni; taldi hún það mundi spilla fyrir verzlunarviðskiptunum milli Dan- merkur og Reykjavíkur, að aðhyllast tillögur alþingis, enda mundi sú tilhögun óráðlegsökum ísa og annara torfærna. Er svo að sjá, sem kaupmenn hafi enn komið til og drcgið úr málinu. Hjer varð nú að sitja við að sinni, og var ferðunura hagað líkt

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.