Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 12

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 12
12 LANDSTJÓllN. ingum eða heimildarlausri lyfj averzlun. Um langan tíma hafa smáskammtalækningar verið tíðkaðar hjer á landi, fyrst einkum norðanlands, en á síðari árum mest á Suðurlandi. Hafa hinir reglulegu læknar jafnan amazt við þeim, en aldrei getað útrýmt þeim nje hnekkt þeim neitt til muna. En þar eð þessar lækningatilraunir eigi eru heimilaðar í lögum, nje heldur verzlun með læknislyf fyrir utan lyfjabúðir, hefur opt verið reynt að stemma stigu fyrir slíku, helzt nú á síðari árum. Meðalakassar smáskammtalækna hafa verið kyrrsettir og rann- sakaðir, en optast hefur þeim verið skilað aptur, því að ekkert saknæmt hefur fundizt í þeim. J>annig var nú kyrrsettur með- alakassi, er Jakob prestur Guðmundsson á Sauðafelli hafði fengið frá Kaupmannahöfn. En þegar er hann frjetti þetta, brá hann við, og fór suður til Reykjavíkur, lögsótti lækni og lyfsaia, er höfðu verið hvatamenn að kyrrsetningunni, og fjekk þá dæmda til að greiða sjer skaðabætur fyrir kyrrsetninguna, og svo máls- kostnað. Aptur var höfðað mál gegn honum fyrir tollsvik á nokkrum pottum af spiritus, er fylgt höfðu meðölunum; var hann sektaður í undirrjetti, en dæmdur sýkn í yfirrjetti. — Málaferli ritstjóra Norðlings, Skapta Jósepssonar, við þá Berg amtmann Thorberg og Halldór yfirkennara Friðriksson út af ummælum um þá í blaði hans, lyktuðu með því, að lands- yfirrjetturinn dæmdi Skapta í sektir, en eigi svo háar, að málinu yrði skotið til hæstarjettar (50 + 120 kr.); og auk þess í máls- kostnað. — Jón Olafsson ritstjóri Skuldar lenti í mála- ferlum við sýslumann Norður-Múlasýslu út af beryrðum í blaði sínu, og varð að sæta sektum í undirrjetti (100 kr.). — Sektir Jóns í Gönguhrólfs-málunum gömlu, þær er hann var dæmdur í af landsyfirrjetti, voru að upphæð 1200 kr., en nú voru þær eptir bón Jóns með konungsúrskurði lækkaðar um tvo þriðjunga, eða niður í 400 kr. í landsyfirrjetti voru nú alls dæmd 31 mál. Af þeirn voru 10 einkamál, en 21 sakamál og opinber lögreglumál. A t v i n n ii v e g i r. Árferðið var nú í mörgum hjeruðum landsins að ýmsu

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.