Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Síða 13

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Síða 13
ATVINNUVEGIR. 13 leyti fremur í lakara lagi, og veðuráttufar engu mildara að öllu samtöldu enárið áður. Eptir nýáriðvar fyrst hartrúman viku tírna, en þá brá til hlýinda, er stóðu fram undir marzmánuð, en þó var opt umhleypingasamt um þessar mundir, og talsverðir snjó- ar nyrðra. Ilafíshroði sást endur og sinnum fyrir Norðurlandi, en eigi rak hann algjörlega inn að landinu fyr en seint í marz- mánuði. Dreif hann þá inn á hvern íjörð og langt suður með landi að austan. Með ískomunni skipti um veður, sem vant er, og gjörði harðindi mikil um tíma um Norður- og Austurland, en óstöðuga tíð og hryðjusama sunnan lands og vestan. Nálægt miðjum apríl fór ísinn aptur að reka frá landinu og dreif til hafs. J>á batnaði tíðarfarið aptur hvervetna, sjer í lagi á Suðurlandi. Jörð tók að leysa upp, og töluverður gróður var kominn víða snemma í maí. En nær miðjum maímánuði skipti aptur um. ísinn rak aptur að landinu og inn á hverja vík; það var borgarís, fullur af snjó; stóð svo um hríð, að hafþök voru fyrir öllu Norður- og Austurlandi, svo að hvergi sá út yfir; en seint í maí rak ísinn aptur frá, alfarinn að mestu. J>egar ísinn rak að landinu í seinna sinnið, gjörði hörkur um allt land, og með- an hann var landfastur, var hvervetna kuldatíð. Yfir höfuð var vorið upp frá því kalt og fremur þurrviðrasamt víðast um land, þangað til í miðjum júnímánuði, en upp frá því gjörði fyrst reglu- lega sumarblíðu; víðast hvar var þó heldur gróðurlítið. Frá því snemma í júlímánuði og fram undir miðjan september var þerrilítið og rosasamt á Suðurlandi, og líkt viðraði á Vesturlandi nema þar var þurrviðrasamara í ágústmánuði; en á Norður- og Austurlandi var tíðarfarið gagnstætt lengst af um þennan tíma, með því að þar voru sífelld þurrviðri. Um miðjan september gjörði hríðaráfelli yfir allt land, með frosti og fannfergju nyrðra ogeystra; það stóð hjer um bil í viku; upp frá því var allgóð tíð sumstaðar nyrðra fram á haustið, en miklu lakari á Austurlandi. Sunnan lands og vestan var haustið kalt og þurrviðrasamt. Seint í október dundi annan áfellið yfirallt land með miklu ofsaveðri; það stóð einnig nálægt viku. Eptir það var haustið fremur hryðjusamt þangað til seint í nóvember, en þaðan frá voru stillt veður, en mikil frost allt til ársloka. Nálægt jólum varð vart við hafís- hroða fyrir Norðurlandi, en hann hörfaði frá aptur um nýárið.

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.