Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Page 17

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Page 17
ATVINNUVEGIR. 17 dýralæknis Snorra Jónssonar tókst að steinma stigu fyrir því, að hún breiddist út. Sjávaraflinn heppnaðist nú víða fremur vel, og sum- staðar afbragðs-vel, og mátti að því leyti telja gott árferði. í Faxaflóa, er undanfarin ár hafði verið því nær fiskilaust, varð nú aptur vel fiskivart. í Garðsjó í sunnanverðum flóanum fór þegar að fiskast um nýárið, og nokkru síðar færðist fiskurinn innar í flóann. Lóðir voru lagðar niður, en tekin upp handfæri, og aflaðist nú um tíma vel á færi, þegar gaf að róa, en gæftir voru mjög stopular sökum umhleypinganna, er gengu um þær mundir. |>á er farið var að leggja netin í miðjum marzmán- uði, tók að aflast ágætlega í hinum syðri veiðistöðvum við fló- ann, og hjelzt það á lengstan hluta vertíðarinnar, þegar gæftir ekki hömluðu. Á Innnesjum afiaðist einkum á færi, en færa- fiskur hvarf að mestu snemma í apríl. Vetrarvertíðin varð fremur endaslepp, en yfir höfuð urðu hlutir víðast í góðu með- allagi, og fiskurinn vænn. Á vorvertíðinni aflaðist allvel í fló- anum, einkum á þilskipin. Aptur aflaðist þar fremur treglega um sumarið og haustið á opin skip. Austanfjalls á Suður- landi var afli í minna lagi á vetrarvertíðinni, nema við Eyrar- bakka, og sömuleiðis í Vestmannaeyjum, enda voru gæftir aust- anfjalls optlega stirðar. Kring um Jökul aflaðist sæmilega á vetrarvertíðinni, lítið um sumarið, en vel um haustið. í Bol- ungarvík og víðar vestur þar var ágætur afli á vetrarvertíð- inni. Um sama leyti var bezti afli í Steingrímsfirði. í Eyjafirði var góður afli framan af vetri, þá er gaf að róa, en jókst, þegar kom fram í apríl, og veiddist þá fiskur upp um ís. Um vorið fiskaðist þar ágæta-vel, svo að annálsvert þykir. Að áliðnu sumri aflaðist þar aptur allvel, og sömuleiðis um liaustið. Hvergi annarstaðar nyrðra varð aðkvæðamikill afli. Á Austfjörðum fiskaðist vel um vorið og ágætlega um surn- arið, en nokkuð minna um haustið, enda hömluðu þá stirðar gæftir. J>að er talið, að flutt liafi verið út um 40,000 skippund af saltfiski þetta ár, og þar af langmest að tiltölu af ísafirði. Síldarveiði var um veturinn á Eyjafirði, um vorið á ísafirði, og ágæt á Seyðisfirði og víðar eystra um sumarið. Hákarls- aflinn var víða með minna móti, einkurn norðanlands, og olli FltJETTIR FRÁ ÍSLANDI. 2

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.