Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 19
ATVINNUVEGIR.
19
Annað mál, sem nokkuð á skylt við þetta, varð nú einnig
mikið umræðuefni í fiskiverunum við Faxaflóa. þ>að var um
fiskiverkun, og sjer í lagi um verkun og vöndun á saltfiski,
er til þessa hefur þótt mjög ábótavant, sjer í lagi þetta árið, og
miður en á Vesturlandi. Um þetta sömdu menn nú einnig nýj-
ar reglur, er fylgja skyldi eptirleiðis.
Af fje því, er alþingi veitti til eflingar sjávarútvegi,
var fyrrum alþingismanni Einari Guðmundssyni á Hraunum í
Skagafjarðarsýslu veittur 500 kr. styrkur til þess að ferðast til
Noregs, og kynna sjer þar bátasmíði Norðmanua, veiðigögn, að-
ferð við veiðiskap, hirðingu og meðferð á afla m. fl., og lofað
jafnmiklum styrk næsta ár, ef hann gæfi út skýrslu um ferð
sína og um það, í hverju menn hjer á landi geti tekið veiðiskap
Norðmanna til fyrirmyndar.
í Njarðvíkum, sunnanvert við Faxaflóa, vildl til óvenjulegt
happ seint í júlímánuði, þar sem þar voru unnin yfir 200
marsvín. Jafnskjótt og menn urðu varir við, að torfan var
komin inn undir land, brugðu menn við, og fóru út með svo
mörg skip og menn, sem unnt var að ná saman í snatri bæði
úr Njarðvíkum og úr Keflavík. Tóku menn að elta þau með
ópum og grjótkasti, til þess að reka þau á land, en þau sluppu
hvað eptir annað úr höndum þeirra, með því að hvorki var
nægur mannafli nje viðbúuaður, þar sem slíkt ber svo sjaldan
að hjer við land. í hópnum voru nokkrir höfrungar, og ollu
þeir mestum óróanum. Loksins hlupu þeir á land, og þá urðu
marsvínin auðsóttari. Tókst þá að reka þau á land á Njarð-
víkurfitjum, og voru þau þar lögð og stungin til bana. Afl-
anum var skipt í landhlut og veiðihluti; landhlutnum var skipt
eptir jarðarmegni hvers eins ábúanda í Njarðvíkum, en hinum
hlutnum jafnt milli þeirra, er að veiðinni voru. Aflinn var
metinn nokkurra þúsunda króna virði.
Hvalrekar urðu nokkrir. Stóran hval rak í Mjóafirði
að áliðnum vetri; hann hljóp lifandi á land, og var þegar unn-
inn. Um sumarið rak tvo hvali eystra, annan í Loðmundar-
firði, en annan í Borgarfirði. Um haustið rak hval á Laufás-
fjörum, og tvo á Tjörnesi. Trjárekar voru sagðir góðir
víða nyrðra, einkum framan af vetri.
2*