Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 21

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 21
ATVIN- UVEGffi. 21 ið er hið eina fjelaga þessara, sem tekið hefur nokkrum veru- legurn þroska, og stendur hagur þess enn sem fyr með miklum blóma. Fjelagið hefur nú enn keypt einn verzlunarstað, nefnil. Grafarós í Skagafirði, svo að nú befur fjelagið verzlun í flest- um sýslum norðanlands og austan. Ársgróði fjelagsins 1877 var talinn 3000 kr., en gróði þess frá upphafi 79000 kr., og hlutabrjef seld alls 1791. Nú hafði það 10 skip í för- um, og verzlaði með vörur upp á 420000 kr. Fjelagið ráð- gjörði nú, í þeim tilgangi að minnka verzlunarskuldir, að þeir, sem skulduðu fjelaginu, skyldu frá 1879 greiða 5 af hundr- aði í.vöxtu af skuldum sínum, og sömufeiðis skyldu þeir, sem inni ættu, fá 5% í vöxtu af því, er þeir ættu hjá verzluninni. |>á var ráðgjört að gjöra eptirleiðis verðmun á ull eptir gæðum, að því leyti sem því yrði við komið. í stöku verzlunum öðr- um voru einnig, að sögn, gjörðar nokkrar tilraunir til að koma á betri vöruvöndun. J>ar á móti hefur minna verið reynt að stemma stigu fyrir skuldum, enda var það síður tiltækilegt í ekki betra verzlunarári. íslenzkar vörur frá árinu fyrir höfðu almennt selzt illa erlendis, og kaupmönnum þótti eigi arðvæn- lega líta út fyrst um sinn. Verðlag á vörum fór nokkuð eptir þessu. í Eeykjavík var hvít ull á kauptíð á 75—80aura pund- ið, mislit á 55 aura, saltfiskur á 45 krónur skippundið, liarð- fiskur á 65 kr. skippundið, lýsistunnan á 40 kr., tólgarpund á 35 aura, smjörpund á 60 til 65 aura. Af útlendum vörum var rúgtunnan 20kr., bánkabyggstunnan 32 kr., baunatunnan 28kr., kaffipund 1 kr., sykur 45—50 aura pundið, brennivín 75 aura potturinn, o. s. frv. Líkt þessu varð verðlag vestaulands. Á Norðurlandi og Austurlandi var verð hærra á ulf, en aptur sum- staðar einnig hærra á kaffi og sykri; að öðru leyti líkt. Korn- vara og kol voru ýmist seld eptir vigt eða máli. Haustverzlun var eigi sjerlega Qörmikil þetta ár, og fjártaka víða minni, en verið hefur stundum að undanförnu. Mest kvað að fjárverzlun Skota á Austfjörðum og Eyjafirði. Af Oddeyri iluttu þeir hjer um bil 1340 sauði, en af Eskifirði og Djúpavogi bjer um bil 950. Hvern sauð keyptu þeir að jafnaði á 18—20 kr. Fjártökuverð í verzlunum var 15—20 aurar fyrir kjötpund, 30—35aurar fyrir mörpund, og 30—35 aura fyrir pund í gæru. Yfir höfuð var

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.