Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 34
34
MENNTIB
marz sjömenn í nefnd til þess, aö endurskoða sálmabók-
ina. pessir menn voru prestaskólakennari Helgi Hálfdánar-
son, skólakennari Steingrímur Thorsteinson, ritstjóri Mattías
Jochumsson, prófastur Björn Halldórsson í Laufási, og prest-
arnir Páll Jónsson á Yöllum (nú í Viðvík), Stefán Thorarensen
á Kálfatjörn og Valdimar Briem í Hropphólum. Fimm nefnd-
armanna áttu fund mcð sjer í Reykjavík 5. júlí (nefndarmenn-
irnir að norðan gátu ekki komið), og var sjera Helgi Hálfdán-
arson þá kjörinn formaður nefndarinnar. Biskupinn gaf nefnd-
inni frjálsar hendur um það, hvernig hún vildi haga hinni fyrir-
huguðu endurbót, og rjcð nefndin þá af, að stofna til nýrrar
sálmabókar, er leyft yrði á sínum tíma að nota við guðsþjón-
ustu ásamt hinum cldri sálmabókum. Gjört var ráð fyrir, að
þessi nofndarstörf mundu taka upp nokkuð langan tírna, og að
þeim mundi cigi lokið fyr en að nokkurra ára fresti.
M a n n a I á t.
Meðal þeirra íslenzkra merkismanna,er önduðust á ári því,
er hjer um ræðir, má fyrst og fremst telja Gísla Magnússon,
skólakennara. Hann sigldi í júlímánuði til Skotlands til þess að
leita sjer lækninga, og dó í Edinburgh 24. ágústm., og var þá
63 ára gamall (f. i5h 1815). Gísli var maður flugskarpur, en
nokkuð annarlegur í gáfnafari, sem lýsti sjer einkum í hinurn
forneskjulega stýl hans og rithætti. Hann var af mörgum álit-
inn einhver skarpasti og lærðasti málfræðingur á öllum Norður-
löndum, þó að fátt eitt liggi eptir hann á prenti. Hann lagði
einkum stund á latínu og grísku, er hann kenndi jafnan í skól-
anum, og forntungu Norðurlanda; og auk þess gaf hann sig tals-
vert við hinni samanberandi málfræði. Hann var skólakennari
nærfellt í 30 ár, og gegndi jafnan embætti sínu með mikilli
alúð og skyldurækni. Annar merkastur maður, er Ijezt á þessu
ári, var Sigurður Gunnarsson, prestur á Hallormsstað og
fyrrum prófastur í Suður-Múlasýslu. Hann andaðist 22. nóvbr.,
66 ára að aldri. Hann var höfðingi rnikill í hjeraði sínu, og
gaf sig mjög við þjóðmálum og margs konar góðum og nytsöm-
um fvrirtækjum. Hann átti og um tíma setu á alþingi. Hver-