Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Síða 36
36
MANNALÁT.
og bóndi á Krossanesi, miðaldra. Af öðrum mönnum úr bæuda-
stjett má nefna þá Jón Jónsson, umboðsmann í Vík í Vest-
ur-Skaptafellssýslu, er dó 27. apríl, og fórarinn Háll-
grímsson á Ketilstöðum á Völlura, er dó um liaustið; þeir
voru báðir merkir menn í mörgu, og voru rúmlega miðaldra, er
þeir dóu.
Meðal þeirra íslenzkra merkiskvenna, er dóu á árinu, voru
einkum kunnar: Ágústa Jolinsen, dóttir Gríms amtmanns
Jónssonar; hún dó í Kristjánsdalsklaustri á Sjálandi 1. apríl,
nálægt 57 ára. Elín Jónassen, dóttir jústizráðs Magnúsar
Stepheusens í Vatnsdal, en kona Theódórs Jónassens, sýslu-
manns í Hjarðarholti; liún dó í Reykjavík 5. apríl, nálægt 39
ára. Guðný Benidiktsdóttir, kona f>órarins prófasts
Erlendssonar á Hofi í Álptafirði; hún dó 8. maí, 76 ára. Sig-
ríður þórðardóttir Stephensen, dóttir þ>órðar Bjarnar-
sonar, kanselfíráðs í Garði, en ekkja þeirra sjera Tómasar Sæ-
mundssonar á Breiðabólstað og jústizráðs Ólafs Stephensens í
Viðey; hún dó 30. sept., 75 ára. Jóhanna Kristjana
Gunnlaugsdóttir, dóttir kammerráðs Gunnlaugs Briems á
Grund, en ekkja prestanna Gunnars Gunnarssonar í Laufási og
þ'orsteins Pálssonar á Hálsi. Húu dó 23. okt., 65 ára.
Frá íslcndingum í Vesturheimi.
Mannflutningar frá íslandi til Vesturheims urðu nú
nokkru meiri en árið áður. Svo er sagt, að vesturfarar hafi að
þessu sinni orðið samtals 422. Af þeim fóru hátt á annað
hundrað til Nýja-íslands, um 100 til Ontario, um 100 til
Minnesota í Bandaríkjum, nokkrir lil Kýja-Skotiands, og enn
nokkrir á aðra staði. Vesturfarar voru flestir af Austurlandi
og Norðurlandi.
Frá Nýja-íslandi, sem er aðalbyggð íslendinga fyrir vest-
an haf, mætti þegar gjöra nokkra sögu, en hjer er eigi rúm
i'yrir nema örstutt yfirlit yfir hagi landa vorra vestur þar.
í þessum þætti í frjettum fyrra árs er þess getið, hvernig
Ný-Islendingar komu fyrir stjórnarmálum sínum og kirkjumál-
um. Á stjórnarhögum þeirra hefur síðan lítil breyting orðið.