Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1902, Side 2
2
spöl áður hún kemur að Vatnsdalsfjalli. Þar á eyrunum er vað á henni,
og er þar hinn eini staður á löngu færi, sem alfaravegur gat legið yfir
þessa á, þó lítil sé; er það bæði vegna þess, að fyrir ofan og neðan
liggja fjöllin snarbrött að henni, og líka vegna þess, að þetta er hið eina
vað á henni, sem liggur á eyrum og er á vetrum lengur fært en annar-
staðar. Lengra upp með ánni norðvestanmegin, fyrir innan norðaustur-
horn Öldunnar, er láglent svæði gagnvart norðurhorni Þríhyruings. Það
er kallað Hrappstaðanes, og öðru nafni Smiðjunes Þar er eyðibærinn
Hrappstaðir, sem eg hefi ritað um í Arbók fornleifafél. 1898, bls. 22—23;
gat eg þess þar, að sú er ætlun manna, að þetta séu Hrappstaðir þeir, er
Njála nefnir, kap. 91. En líka gat eg þess, að hvergi þætti jafnlíklegt og
þar, að verið hefði bærinn »Undir Þríhyrningu, þar sem Starkaður bjó.
Sýndi eg fram á, að þetta gæti verið rétt hvorttveggja, án þess eg fullyrði
neitt um það. Að visu var mér kunnugt, að ýmsir aðrir, og þar á ineðal
Kaalund (hist. topogr. Beskr. af Island bls. 233), hafa komizt að þeirri nið-
urstöðu, að bærinn »Undir Þrihyrntngi« mundi vera sami bær og sá, sem
nú heitir Vatnsdalur. En það hefir mér eigi sýnst liklegt. Bæði er það,
að sá bær stendur eigi undir Þrihyrningi sjálfum, heldur góðan spöl frá
honum undir öðru fjalli, — hefði fremur mátt heita: Undir Vatnsjelli, —
og svo hefði Þorkell bundinfóti þá sett bæ sinn í það land, sem »Hængr
hafði . . . undir sér«, og utan við sitt eigið landnám. Og þar sem ýms-
ir, og þar á Kaalund (1 sömu bók bls. 234) hafa gizkað á, að Holt, þar
sem Hróðný bjó, sé sami bær og Reynifell, þá eykur það ólíkindin. Því
þegar smalamaður Hróðnýjar leitaði fjárins suður á Sámstaðaheiði, er hann
fann Höskuld veginn, þá hefði bærinn »Undir Þríhyrningh verið þar í
milli, ef hann hefði verið þar, sem Vatnsdalur er. Þó hygg eg það rétt
til getið, að Holt sé sama sem Reynijell, þ. e. a. s. landið að meira eða
minna leyti, en ekki bærinn sjálfur: Undir suðurhorni Reynifellsöldu, nið-
ur við eyrarnar þar sem Fiská rennur og vaðið er, má sjá rúst allmikla,
sem eigi getur annað verið en bæjarrúst, þó tóftaskipun sjáist nú eigi
lengur. Hníga allar líkur að því að bærinn Holt hafi staðið þar; hefir
hann haft nafn sitt af öldunni, sem þá hefir verið skógi vaxin; viðlíka
skógarhæðir voru vanalega kallaðar holt. Seinna hefir skógurinn eyðst og
Aldan blásið upp en bærinn farið af. Þar eftir hefir Aldan gróið upp,
sem auðséð er á henni, og þá hefir bær verið gerður norðvestan undir
henni og kallaður Reynijell. A Njálu dögum mun Vatnsdalur eigi enn
hafa verið bygður, en Hróðný beitt fénaði sínum suður í Vatnsfell: og er
þá alt eðlilegt um ferðir smalamanns. Vaðið mun hafa haft nafn af bæn-
um, — sem var þar svo nærri, — og heitið Holtsvað. Að vísu er Fiská
svo lítil, að í fljótu áliti sýnist ólíklegt, að vaði á henni hafi verið gefið
sérstakt nafn. En þau ólíkindi hverfa þegar þess er gætt, að alfaravegur
hlaut að liggja þar yfir, en gat eigi legið annarstaðar í nánd. Þykist ,eg