Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Side 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Side 1
Hörgsdalsfundurinn. Eftir Björn M. Ólsen og Daniel Bruun. Inngangsorð. Vorið 1890 eða 1891 var Arni bóndi Flóventsson i Hörgsdal í Mí- vatnssveit að graía firir hlöðu í túninu skamt norður frá bænum. Varð þá firir honum djúpt í jörðu grjótbálkur, er gekk unt þvera hlöðugröfina, og á bálkinum nær miðju hans lá aflangur hellusteinn með bolla, og virt- ist hellan vera eldborin að ofan. I mörg ár lá fundur þessi í þagnargildi og vissu ekki aðrir um haun enn nágrannar og kunningjar Arna bónda. Arið 1897 var kapt. Daniel Bruun á ferð um Þingeijarsíslu, og fjekk hann þá óljósa fregn um fundinn hjá Jóni bónda Þorkelssini á Víðikeri1; bað hann Jón grenslast betur eftir um fundinn og rita rektor Birni M. Ólsen um hann. Þetta gerði Jón bóndi sama haust, enn Björn M. Olsen afhenti brjefið forseta hins ísl. Fornleifafjelags, dócent Eiríki Briem. Var það þá ráðið, að fjelagið skildi láta rannsaka þetta betur, svo fljótt sem efni og ástæður leifðu. Leitaði forseti samninga við Arna bónda í Hörgsdal um leifi til að grafa þar í túninu, og sumarið 1900 var fornfræðingur fjelags- ins Brynjólfur Jónsson sendur þangað til að uudirbúa rannsóknina. ^ikirsla hans um árangurinn af þessari ferð er prentuð í Arbók Fornleifafjelagsins 1901, 7.—11. bls., og leifum við okkur að taka úr henni það, sem nú skal greina: »Hörgsdalur heitir bær í Mívatnssveit. Hann stendur i litlu daldragi uppi í heiðinni vestur frá Gautlöndum. Eftir daldraginu rennur lækur sá, er mindar upptök Reikjadalsár.2 Nafn bæjarins bendirtil, að hannhafi 1) Sbr. Daniel Bruun, Nokkrar eiðibigðir í Árnessíslu, Skagafjarðar- döluin og Báröardal (Filgirit við Árb. Fornleifafjel. 1898) 68. bls. 2) Rjettara væri: eina af uppsprettum Reikjadalsár, því að uppgprett- urnar eru fleiri. 1

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.