Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Side 25

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Side 25
25 Með því að^maðurinn hafði flutt með sér til Ameríku þær menjar, er hann hafði fundið, og þær verða því ekki athugaðar, þá verður eigi úr því skorið, hvort járnkökkurinn t. d. hafi verið leifar af sverði eða hnífi. Eigi ætla menn, að þar hafi fundist hringjur eða þess háttar munir, er beint sýndu, að kona hefði þar verið jörðuð. Fyrír þá sök verður það að liggja milli hluta, hvort hér hafi verið leiði manns eða konu. Má vera, að örnefnin Vígstaðaland og Hólmur bendi tii þess, að hér hafi í fyrndinni staðið bardagi eða hólmganga verið háð. Hér að framan hefir verið rætt um nokkra fundi frá síðari árurn og skal nú bætt við teimur eldri fundum: V. Valþjófsstaðarfiiadurinn. Milli prestsetursins Valpjójsstaðar í Norður-Múlasýslu og Sturluflatar er eigi langur vegur. Nálægt 1820 fundust hér merkilegar fornmenjar, er svipar mjög til þeirra, er áður hafa verið nefndar. Þær eru nú geymd- ar í Þjóðmenjasafninu í Kmh. og gefnar því árið 1822 af síra Vígfúsi Ormssyni, svo sem gripaskráin sýnir. I þessum fundi (tafla V. 2.) eru 2 kúpt nisti úr bronsi, efra hvolfið gagnskorið og gullroðið, og lítil hringja úr bronsi kringlótt og gullroðin. Þessir gripir fundust í haugi, svo og nokkrar glertölur, er sýnast eigi hafa lent síðar í safninu. Glöggvari vitneskju um fund þenna má fá af fornmenjaskýrslu prestsins árið 1021.1 Hann segir, að fyrir nær 20 árum (eða um 1800) hafi hann gengið urn leiti nokkur er voru í uppblæstri, fyrir sunnan tún- ið á Valþjófsstað, hafi hann séð lærlegg af manni standa fram undan moldarbakka og hafi hann síðan rannsakað staðinn. Þá fanst þar beina- grind af manni; virtist líkið hafa verið beygt saman og lagt svo niður i gröfina. Milli búks og höfuðs var fjöldi smárra og stórra glertalna, hinar stærstu sem fremsti köggull á vísifingri meðalmanns, heldur styttri, svart- ar að lit með hvítum og rauðum hringum, hinar minstu á stærð við krækiber, einlitar og svo sem væru þær silfraðar. Lítill ferhyrndur skart- gripur úr eiri, til að bera á bringu sér, lá þar sem brjóstið á líkinu hafði verið og »fer hann með hinum gripunum, en glertölurnar eru glataðar og verða því eigi sendar«. Tveir skartgripir úr eiri íundust þar, sem mittið á líkinu hafði verið, og virtust hafa verið festir á belti og kræktir sarnan, með því að krókur var á öðrum, en undir hinum sáust leifar af vefnaði. Þessir gripir voru og sendir út. 1) Kaalund-. Islands Fortidslevninger (í »Aarb. f. nord. Oldk. og tist.« 1882), 4

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.