Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Blaðsíða 37

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Blaðsíða 37
v akurreinar, ]íkt og á Garðskaganum. Bærinn Sandgerði hefir í fyrstu ver- ið bygður sem hjáleiga frá Uppsölum, og er sagt hann hafi upphaflega heitið Sáðgcrði. En þá er akuryrkja var hætt, gat sandfok valdið þvi, að nafnið breyttist. Það sem olli þvi, að Uppsalir lögðust í eyði, en Sand- gerði varð aðalbýlið, hefir án efa verið vegalengdin til sjávar. Frá Upp- sölum var óliku lengra að sækja til fiskiróðra. En eins mátti nota heið- ina til beitar frá Sandgerði. Fyrir nokkrum áratugum var kot bygt á Uppsalatúninu. Það stóð fáein ár og aflagðist svo aftur. 15. Prestshús nefna máldagar, er virðist haía átt reka »fyrir sunnan akurlönd Sandgerðinga«. Milli Sandgerðis og Býjarskerja er sandvik við sjóinn, — mun vera sama sem »vik Uppsælinga« í máldögum — og gengur þaðan talsverður uppblástur. Þar sér í sandinum fyrir ferhyrndri girðingu nál. 30 fðm. á hvern veg, og sér til rústa i suðvesturhorninu. Má sjá að tóftir hafa verið 3, hver af enda annarar. Sést og að brunnur hefir verið sunnanvið girðinguna. Þetta ætlar séra Sigurður að hafi verið Prestshús, og að prestur sá, er þjónaði kirkju á Býjarskerjum, hafi haft það býli sér tíl uppeldis. Virðist þetta korna heim við bæjaröðina í rekaskrá Rosmhvalaness. 16. Býjarsker er sagt að heiti Bæjarsker réttu nafni, og Landn. hefir það »Bearsker« (V. 13.). Býjarsker má taka til dæmis um landbrot af sjávar völdutn. Út frá túninu þar gengur eyri norðvestur í sjó, kölluð Býjárskerseyri. Hún er ákaflega löng en tiltölulega mjó. Sumstaðar eru lægðir eða sund yfirum hana þvera, sem hvert flóð fellur ytír, en á milli eru háar spildur, sem ekki fara í kaf nerna í meiriháttar flóðum. Ein slik spilda er yzti oddi eyrarinnar. Heitir þar Graseyri, því hún var öll grasi vaxin fram yfir miðja 19. öld. Urn 1870 var að eins lítil torfa eftir, svo sem 10—12 Q faðmar, en 1877 var hún alveg horfin og eyr- in ber eftir um fjöru. Svo sagði mér kunnugur maður. Fyrir innan Graseyri er sund gegnum eyrina, það er Eyrarsund heitir. Þá tekur við skerjaklasi, sem ekki er nafn gefið. Þá liggur Krókasund gegnurn eyrina. Fyrir innan það er hátt rit, sem heitir Munkasetur. Er sagt að það hafi eigi einasta verið þurlendi fyrrum, heldur hafi þar verið bygð og nokkurs- konar klaustur. Ymsar sagnir hafa gengið urn »munkana«, sem héldu sig í Munkasetri og hafa þær ruglast sarnan við »Junkara«-sagnirnar í Grinda- vík og Höfnum. (Sjá Huld 1892). Norðan megin við Munkasetur er annað rif, eða há gróteyri, sem heitir Sverriseyri. Þar á milli er lág fjara. Þar heitir við eyrina Sverriseyrarvik. Þar er lendingarstaður góður ef uppi við landsteina væri. Enda var þar fyrrum útræði mikið og gengu þaðan konungsskip. Má geta nærri að þá var alt út þangað þurlendi. Sem dæmi þess, hve langt muni siðan, var mér sagt, að faðir Sighvats bónda á Býjarskerjum, föður Jóns stúdents, er þar bjó síðan og lifði framundir 1860, hefði talað við kerlingu, sem á yngri árum sínum var soðningar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.