Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 19
19
ofan cftir. Og- hún þurfti ekki að vera svo ýkjamjó til þess, að
menn gæti kallast á yflr um hana. En annað mál er, hvort það
getur talist líklegt, að bærinn hafi fengið þannig lagað nafn af þessari
orsök. önnur skýring er sú, að »kallaðr« hafi verið viðurnefni
manns, er bærinn liafi haft nafn af, — og þá breyzt eins að sínu
leyti. En orðið »Tcallaðr« er þó ekki vel líklegt til að vera viður-
nefni manns. Þriðja skýringin er, að bæi’inn sé kendur við mann,
er hafi lieitið keltnesku nafni, t. a. m. Kállan eða Kaltan, en að
endingin -an hafi svo breyzt í -aðr (eins og Duncan í Dungaðr).
Við þá skýringuna felli eg mig einna bezt. Og þá má líka hugsa
sér, að »kallaðr« hafi getað verið viðurnefni manns, ef það hefði
verið myndað úr keltnesku nafni (eins og t. d. viðurnefni Helga
bjólans o. fl.). En um þetta er ekkert hægt að fullyrða. — Ekki
sést nú á dögum hvernig endingin -nes er til komin. Líklegast þyk-
ir mér, að upphaflega sé meint nesið, sem myndast hefir milli ár-
innar og Fyllarlækjar, þó það liafi náð langt úteftir; því gat samt
verið haldið svo langt upp með ánni, að bærinn gæti haft nafn af
því. Og sama getur verið orsökin til þess, að enn í dag eru Kald-
aðarnessengjarnar, sem liggja út með ánni, kallaðar Straumwes. En
því mun það vera kent við straum, að áin hefir á því svæði verið
straummeiri, er hún var mjórri. Verið getur líka, að þar útfrá,
sem nú er af brotið, hafi smálækir, sem nú eru ekki til, myndað
nes milli sín og á þann hátt gefið tilefni til Straumness-nafnsins.
Fleira hefi eg ekki um landnám Þóris að segja.
Kanibakista, Hróarslækur og Hróarsholt.
Svo segir Landnáma (s. st.): »Hróðgeir hinn spaki og Oddgeir
bróðir hans .... námu Hraungerðingahrepp ok bjó Oddgeir í Odd-
geirshólum; hans son var Þorsteinn öxnabroddr, faðir Þórgeirs, föð-
ur ögurs í Kambakistu«. Hér er heldur ekkert um landnámið að
segja. En eg vil nota tækifærið til að athuga nafn, og þá einkum
bœjarnafn, Ögurs í Kambakistu. Það eru svo einkennileg og sjald-
gæf nöfn, að eg hefi lengi litið svo á, sem Ögur muni hafa verið
nokkurs konar þjóðtrúar-persóna, — þrátt fyrir það, að ætt hans er
talin frá landnámsmanni, — og að Kambakista muni hafa verið
dularstaður, er menn hafa hugsað sér. En nú hefir annað i’unnið
upp fyrir mér, sem eg hygg að sannara muni vera: Ögur mun
hafa vei’ið söguleg persóixa og nafnið leitt af aga (ófriði), en inynd-
að á saxna hátt og Oizur og Özur. Annars er ekkei’t um manninn
að segja. En aðalatriðið er bœjarnafnið. Nú hygg eg að eg geti
3*