Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 9
9
hefði líka verið bundin við fjórðungamót, en það hefir hún sýnilega
ekki verið, því að það hefði, að því er séð verður, verið ástæðulaust
að færa fjórðungamótin frá Botnsá, hefðu þau verið þar 1226, vestur
til Hafnarfjalla eptir að stjórnarfarsbreytingin komst á 1265 og til
þess, er Gizur dó, 1268; — en fyrir þann tima og frá því um 1200
var það vitanlega allscndis ógjörlegt, úr því að Lundarmannagoðorð,
þótt kloflð væri milli manna, náði þá suður um sveitirnar fyrir
sunnan Hafnarfjöll. — Hitt hefði verið eðlilegra, að setja fjórðunga-
mótin við Botnsá, er goðorða- og þinga-skipunin var niður lögð og
landi skipt í sýslur, því að þá Var Borgarfjarðarsýsla látin takmark-
ast af Botnsá. Mun ástæðan til þess, að sýslutakmarkið var sett
þar, einmitt hafa verið sú, að þar voru svo sem þingaskil áður,
eins og síðar skal sýnt fram á. Að osttollurinn komst í þetta skipti
alt til Hafnarfjalla, og að hann ekki komst lengra, mun m. a. hafa
verið sökum þess, að Gizur jarl heflr frekar staðið á móti því, að
tollurinn yrði lagður á þann liluta hins gamla Lundarmannagoðorðs,
sem Snorri hafði mest ráðið yfir, því að yfir öllu þvi, sem tilheyrt
hafði Snorra, hafði Gizur alveg sérstakt vald sem jarl konungs, er
kastað hafði eign sinni á alt það, er Snorri hafði átt. — Annars er
það um osttoll þennan að segja, að hann galzt boði »seint ok illa«,
eins og Snorri officialis Þorleifsson kemst að orði í úrskurði sínum
um hann 1361 *); segir hann og þar, að Skálholts kirkja hafi í fyrstu
fengið þennan osttoll, en »formaður« hennar (einhver byskupanna)
hafi gefið hann klaustrinu í Viðey »til uppreistar«; að líkindum er
hér aptur átt við máldagann, sem gjör var að ráði Magnúss byskups
1226. — En það lítur út fyrir, að takmörkun byskups á ostgjaldinu
við Botnsá 1226 hafi þótt mjög eðlileg og komið til af fleiru en því,
að þar voru svn-sem þingamót, og mótþróa þeirra, er helzt höfðu
mannafórráð fyrir innan það takmark, gegn því að þingmönnum
þeirra væri íþyngt með slíkum álögum; Botnsá virðist nefnilega hafa
verið þegar snemma á miðöldunum einskonar kirkjusókna- eða presta-
kallamót* 2 *) og síðar jafnvel prófastsdæmamót, eptir að byskupartóku
að setja prófasta yfir tiltekin svæði snemma á 14. öld8); þannig er
í Flateyjar annál4) þess látið getið, að »Halldór Loptsson hafði þegið
af herra Michaeli Skálholtsbyskupi prófastsdæmi milli Botnsár og
‘) ísl. fornbrs. III., bls. 181—82.
s) Sbr. Grág. I. b., bls. 217.
8) K. Cleasby & Guðbr. Vigfússon, lcel.-engl. dict. s. v. profastr. tlm
prófastsdæmin sjá Prestatal og prófasta eptir Svein Nielsson, bls. VII. VIII.
4) Storm, ísl. ann., bls. 417.
3