Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 40
40
fædd 1788 og kann vel hafa sauinað þetta 1806; d. 18241). Saum-
urinn er prýðisgóður; rayndin sýnir fornar hallarrústir raeð brotnum
súlum og bogagöngum, og tré, sem breiða blöð sín yfir.
6828 a—b. u/5 Stólcir 2, smíðaðir úr mahógní í »empire«-stíl,
með fremur venjulegri gerð að mestu leyti; fætur sléttir, ferstrendir,
niðurmjóir, þeir optri bognir aptur. Bakið nær beint upp, með 3
útskornum »pílárum« (rimum) í; hæð baksins (alls, frá gólfi) 85,5
cm. — Seturnar eru nú með stálfjöðrum og krulluðu hári, klæddar
rósofnum dúk nýlegum, en ekki verður séð af þeim, hversu þær
hafi verið í fyrstu. — Líklega danskir að uppruna og hefir Bjarni
kaupmaður Sigurðsson (Sivertsen) í Hafnarfirði fengið þá ytra, lík-
lega nýja, en síðan hafa þeir verið í hans ætt. Sbr. nr. 6838 a—f.
6829. 14/5 Peningakistill smíðaður úr furu, allur útskorinn og
skrautlega málaður, 1. 44,3, br. 26,4, h. undir lok 20,9 cm. Lok og
botn taka dálítið út fyrir. Ofan á lokið er fest útskornum blómum
og upphafsstöfunum / S D í miðju. Innan á lokið er málað
blóm. Okar eru undir endum loksins og járnlamir, 16,8 cm.
langar, eru innan á því. Á framhlið og apturhlið er útskorið og
málað blómskraut, helzt í »barokk«-stíl. Stór járnskrá er í framhlið
og lauf fyrir, en fyrir neðan það er málað og skorið ártalið 1780.
Gaflar eru tvöfaldir og eru ytri fjalirnar útskornar og gagnskorin
hjartamynduð blóm á, skrautlega málaðir; þeim má kippa upp og
siðan draga skúffu út úr hvorum enda; eru þær 5,3 cm. að hæð og
ná saman í miðjum kistli, en þó fjöl í milli; botninn vantar í aðra;
botninn í kistlinum er tvöfaldur og skúffurnar í milli. Kistill þessi
hefir verið hinn vandaðasti smíðisgripur. Hann hefir síðast tilheyrt
Steinunni Thorarensen, ekkju síra Stefáns á Kálfatjörn.
6830. 14/5 Mynd, teiknuð með svartkrít og blýanti á hvítan
pappír, ávextir og blóm ; ágætlega gert. St. 21 X 27 cm. í brúnni
og gyltri umgerð, br. 5 cm. Sbr. 6831.
6831. 14/5 Mynd af stúlku, teiknuð sem nr. 6830; st. 24 X 19
cm. I likri umgerð og nr. 6830, br. 4 cm. — Nafnið Malvina er
skrifaö undir. Báðar þessar myndir, 6830—31, munu vera eftir
Rannveigu J. M. Sivertsen, systur Steinunnar J. Thorarensen, er átti
þær. Sbr. nr. 4242.
6832. 16/5 Rannveig Egilson, frú í Hafnarfirði: Riddarakross
dannebrcgsorðunnar úr gulli, smeltur, með venjulegu lagi, en óvenju-
lítill, krossinn sjálfur að 1. 11 og br. 9 mm. Nafndráttur Friðriks
6. (F R VI samandr.) er yfir og kóróna þar yfir. Krossinn er á
*) Sbr. Sýslum.æfir IV. 183.