Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 34

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Blaðsíða 34
34 miðju; er á hjörum, sem nú eru brotnar. Handarhald grænt, vafið reyrbandi. Stútur nær beinn út og upp. Omerkt; líklega frá 18. öld. 6790. 25/2 Smástokkur með loki yfir, á vírhjörum og með vír- króki, og okum, sem eru utanvið við gaflana. Sjálfur er stokkur- inn eintrjáningur úr mahógní, 1. 11,4 cm., br. 7,7 og þ. (hæð) 1,8 cm., dýpt 1,3 cm. Lokið er úr eik, 1. 12,6 og br. 6,2 cm. Efnis= þykt 4—5 mm. Dökkleitur og gamallegur. Fylgir honum sú sögn, að síra Hallgrímur Pctursson í Saurbæ hafi smíðað hann. Stokkur- inn sjálfur er fremur vel gerður, en lokið óvandaðra og kann að vera eftir annan; enda virðist annað lok hafa verið á stokknum áður; benda hjarirnar á það og göt eftir eldri hjarir. — Kann hafa verið fyrir gleraugu. 6791. a5/2 Kavíupör, steypt úr silfri, hver stokkur sem odd- myndaður skjöldur og kringt úr hornunum, rákóttur og hveifdur, 1. 2,8 og br. 2,7 cm. mest á hvorum stokk. Íslenzk og gamalleg. 6792. 25/2 Látúnshnappur með pressuðu verki, hálfkúlumynd- aður, um 1,9 cm. að þverm.; útlendur að gerð en all-gamall. 6793. 2B/2 Olafur Björnsson ritstjóri, Reykjavík: Armstóll, smiðaður úr bæki og málaður svartur, bak, fætur og seta laglega bugótt, í skelstíl. Laus seta í með reyrneti neðst og útsaumuðum dúk efst, uppdrátturinn blóm í umgjörð, í »regence«-stíl. Mun danskur að uppruna og tilheyrði lengi Gesti skáldi Pálssyni; síðan átti hann lengi faðir gefandans, Björn ritstjóri og ráð- herra Jónsson. — Utsaumurinn líklega yngri en stóllinn, scm þó er varla eldri en 40—50 ára. — Hæð setu 44,5 cm., baks 86 cm., setubreidd 53 cm. 6794. 8/3 KirkjukluLka steypt úr kopar, fremur bein upp, þverm. efst um hettuna 14,6 cra., en niður við slaghringinn 20,9 cm; mest er þverm. neðst, 27 cm. Hæð 19,3 cm., auk krónunnar, sem er liklega 7 cm. að hæð, en henni er fest í rambald úr furu (1. 34 cm.) með lykkjum úr eir og járni. Umhverfis efst er letur* bekkur með gotn. smáletri, stafhæð um 1,5—1,8 cm. og virðist þetta vera letrað: Anno m d c help vns o goot min her vnd vorlat. — Fyrir neðan fyrsta orðið er á klukkunni miðri skjaldarmerki Ham- borgar, en fyrir neðan línuna er umhverfis röð af 14 skjöldum, og virðast vera á þeim kringlur í miðju, en naglar og stengur út frá; er þetta vafalaust skjaldarmerki Schaumborgar: netlublað þrískift utan um lítinn miðskjöld og 3 naglar á milli hlutanna. — Var í Fagraness-kirkju í Skagafirði. 6795. 8/b Kirkjuklukka, steypt úr kopar, lik að öllu nr. 6794; þverm. efst 14,1 cm., neðst 24,4 cm., hæð 19,3 -J- 7 cm. Aletrun:

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.