Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Page 45
Skýrsla.
I. Ársfundur félagsins 1916.
Arsfundur félagsins var haldinn 30. nóv. 1916. Formaður mint-
ist fyrst látinna félagsmanna: Þorvalds læknis Jónssonar á Isafirði
og próf. Aug. Gebhardts í Niirnberg.
Því næst lagði formaður fram endurskoðan ársreikning félagsins
fyrir árið 1915 og liöfðu engar athugaseindir verið við hann gerðar.
Þá tók formaður fram, að sökum hinnar miklu verðhækkunar
á pappír og prentun mundi verða óumíiýjanlegt að takmarka mjög
stærð Árbókarinnar i þetta sinn, og voru allir fundarmenn því sam-
þykkir.
Enn fremur var eftir tillögu formanns í einu hljóði samþykt
að sækja til landstjórnarinnar um aukinn styrk al' landssjóði, með
tilliti til kostnaðar við prentun á skýrslu um muni þá, er árlega
bætast Þjóðmenjasafninu, í Árbók félagsins.
II. Reikningur hins íslenzka Fornleifafélags 19.5
Tekjur:
1. f sjóði frá fyrra ári.............................kr. 1822 98
2. Tillög félagsmanna og seldar Árbækur . . . . — 128 40
3. Styrkur úr landssjóði..............................— 400 00
4. Vextir á árinu:
a. Af bankavaxtabréfum . . . . kr. 72 00
b. Af innstæðu í sparisjóði ... — 9 35
------------' — 81 35
5. Skuld við.féhirði..................................— 151 23
Samtals kr. 2583 96