Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Qupperneq 4
4
er 1,5 cm að þ. og 2,1 að br. Hún, hliðar báðar, yfirþilja og gafl
eru öll úr furu. Yfirþiljan er 7,4 cm. að br. fremst, þar sem hún
er negld ofan á hausinn; 10 cm. aftar er hún 9,3 cm., 10 aftar enn
er hún 10,8 cm. að br Hún nær aftur að gaflinum og er 6,8 cm.
að 1. Við gaflinn væri hún nú 13,6 cm., væri hún heil, en dálítið
hefur sprungið úr röndinni annari, þeirri sem að snýr, ef hausinn
er til hægri handar. 20 cm. fyrir framan gaflinn er br. 13 cm.,
10 cm. framar er hún 12,8 og enn 10 framar ll,8cm., og 8 fr.imar,
20 cm. frá fremri enda, 10,8 cm. svo sem fyr segir; beygjan á
röndunum á yfirþiljunni er aðallega um 40 cm. frá gaflinum. Yfirþiljan
er neðst greypt lítið eitt inn í gaflinn, og á hausnum er skorið úr
fyrir allri þykt hennar, 5 mm. Hljóðop 3, í lögun sem rjett eða
öfugt S, eru á henni; 2 aftan til, 11,5 frá gafli, 7 cm. að 1, og hið
3. 4,3 cm frá gafli, 8,5 cm. að 1.; þau eru 1,3 og 1,5 cm. (hið fremsta)
að br. um miðju, en ganga út í odd til endanna. Innan við þau
aftari eru aftast 1,2 cm. víð, kringlótt göt, sett i samband við þau
til að sjá. Um 4 cm. fyrir framan gaflinn eru festir 2 litlir látúns-
kengir í yfirþiljuna; annar er hjer um bil á miðju, en hinn, sem
nú er að mestu brotinn af, er 1,7 cm. frá vinstri brúninni; 3,6 cm.
á milli þeirra. Sá, sem enn er heill, er 8 mm að hæð og jafn-
breiður. Endarnir ná að eins gegnum þiljuna. — Okunnugt
er að svo stöddu til hvers þeBsir kengir hafa verið, en
þeirra verður minst frekar síðar. — Ofan á fremri enda þiljanna
og að litlu leyti ofan á aftari enda haussins er negldur eins konar
fastastóll, sem strengirnir eru lagðir yfir. Hann er úr birki, 5 cm.
að hæð og 7,4 að br., neðst 8,3 og á 5,4 cm. br. fæti að framan.
Hann hefur brotnað og síðan verið spengdur með látúnsspöngum.
Dálitið hefur verið tekið ofan af honum eins og gaflinum, óvíst hve
mikið, og skornar 4—5 nýjar skorur i röndina fyrir strengina.
Lausa-stóll fylgir, nýlegur, gerður úr birki; hann er 5,5 cm. að
hæð og tollir því ekki undir strengjunum aftan til, en er mátulega
hár og breiður, 7.2 cm. mest, til að vera undir þeim fyrir framan
fremsta hljóðop, um 8 cm. fyrir aftan fasta stólinn. Kemur það
ekki heim við lýsingu Sigurðar Vigfússonar, þar sem hann segir, að
stóllinn hafi verið »hafður undir strengjunum við digrari endann«,
en vel við hitt, að leikið hafi verið »á mjórri endann*.1). Lengd
strengjanna, af gafli á fasta stólinn, er 65 cm, og þá 57 cm af
gafli á lausa stólinn, sje haun hafður 8 cm. frá hinum fasta, svo
j: ,1) Hngsast g®ti að skilja bæri orð S. V, öðruvisi en hjer er gjört; verður
vikið að þvi siðar.