Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Síða 13
ð
Hrosshár í strengjum
og holað innan trje;
eigi átti hann fiðlari
meira fje.
Síðar hafa menn fundið upp á því að hafa vírstrengi á fiðlunni
og sennilega tekið það eftir langspilinu; og loks hefur Sigurður Árna-
son í Garðsauka girnisstrengi á sinni fiðlu, tekur það eftir fíólíninu,
en vart mun það hafa veiið siður, enda hefur víst hans fiðla verið
með þeim síðustu, er gerðar voru, og máske síðust, að undantek-
inui fiðlu þeirri, er sjera Bjarni ljet smíða sjer eftir síðustu aldamót.
Að hafa (hross)hársstrengi var ekki einstakt um fiðluna; eftir
því er segir í gömlum norrænum þjóðvísum hefur fyrrum verið haft
hár í hörpustrenginn og finskar þjóðsögur herma, að til forna hafi
strengirnir á kantelunni finsku verið snúnir saman úr hrosshári.1)
Þau Ól. D. og llortense Panum skildu ekki, hvað átt var við
með 5. línu gátunnar: »Handarbökum höldar að henni snúa«, en af
skýrslu Jóns Árnasonar var ljóst, að það var einmitt við eigandi lýs-
ing á því, hversu einkennilega höndunum var haldið, er leikið var,
einkum vinstri hendi; og við lýsingu Jóns kemur lýsing Stefáns Er-
lendssonar og sömuleiðis Jakobs, bróður Jóns, að þessu leyti alger-
lega heim.
Vikivakaerindið, gátau, lýsingar v. Troii og Magnúsar Steph-
ensens eiga að líkindum við fiðlu með líku lagi og er á Keldu-
hverfisfiðlunni, nema hvað efnið í strengjunum snertir og, að því er
lýsingu v. Troil viðvíkur, tölu þeirra, því að hann segir að ekki
sjeu 2, heldur 1 strengur á fiðlunni. Síst er að fortaka, að fiðlur
með 1 streng hafi verið til fyrrum, og liklega hefur upphaflega ver-
ið að eins 1 strengur á fiðlunni, hvort sem hún er afkomandi og af-
brigði af hinum forna einstrengingi (monokord) eins og ungfrú H.
Panum ætlar (Aarsberetn. 1905, 158) eða hún er honum eldri og
óskyld, svo sem jeg hygg að hún sje. — En auk strengjanna, efnis
þeirra og tölu, er og annað athugavert í því efni, hversu líkar þess-
ar fiðlur, sem lýst er á 18. öldinni, hafi verið Kelduhverfisfiðlunni;
það er hvort á þeim hafi veiið stóll eða ekki. Það verður ekki sjeð
af lýsingunum, nje gátunni eða vikivakaerindinu; og það er
allsendis óvíst, ef taka má mark á því, að enginn stóll er sýndur á
Möðruvallafiðiunni, sem annars er þó af sömu gerð, og því, að Jón
Árnason kvað engan stói hafa verið á fiðlu Sigurðar bróður síns.
Enginn gamail stóll fylgir heldur Þjóðminjasafns-fiðlunni, en að vísu
‘) Sbr. ritg. Hort. PanQm, Aaraberetn. 1905, bU. 139 og 156.
2