Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Side 14
10
sögn Sig. V., sennilega eftir Einari snikkara, um að stóll bafi fyígt
henni, »verið hafður undir strengjunum við digrari endann«, og svo
þessi'nýi stóll, sem ekki kemur þó heim við sögn Sig. V., ef svo á að
skilja hana, að stóllinn hafi verið hafður kyr undir strengjunum En
aðgætandi er, að S. V. kann að hafa átt við hreyfanlegan stól, er
hafður hafi verið til þess að afmarka tónhæðina á strengjunum; orða-
iagið bendir jafnvel á það: »engar hafa verið á henni nótur, en
»stóll«, sem kallaður er, hafður undir strengjunum við digrari end-
ann, er (þ. e. stólinn) færa mátti til, og þó leikið (spilað) á mjórri
endann*. Hann getur þess ekki með einu orði, að tónhæðin hafi
verið afmörkuð með fingrunum á vinstri hendinni á hinn afar-ein-
kennilega hátt, er þeim bar saman um, Stefáni og bræðrunum, Jóni
og Jakobi Árnasonum. En hafi þeir Einar og S. V. álitið, að slíkur
stóll hafi fylgt fyrruin og átt að fylgja fiðlu þessari, og þessi nýi
stóll smíðaður til slíks, þá er varla neinn vafi á því, að þeir hafa
verið í því efni á algerlega rangri skoðun. Raunar var leikið þann-
ig á einstrenginginn, sbr. bls. 114 í Aarsbr. 1905, ritg. H. Panum;
en lýsingar Stefáns, og þeirra bræðra þó einkum, taka hjer af all-
an vafa, því að þekking þeirra og lýsing á fiðluleiknura var komin
beint að kalla frá fyrverandi eiganda og notanda þessarar sömu
flðlu, svo sem áður er skýrt frá.
Sjera Bjarni segir, að strengjanaglarnir sjeu við breiðari endann
á Kelduhverfisflðlunni, en stóllinn undir strengjunum nálægt mjórri
endanum og að boginn hafi verið dreginn yflr strenginn vinstra
megin við stólinn Þetta er eðlilegt og sennilega rjett, en ekki
kemur þetta heim við Þjóðminjasafns-flðluna; á henni eru strengja-
naglarnireða skrúfurnar í hausnum við w/dm endann.og stóliinn hæfir
þeim endanum einnig; og eðlilegt erað sá endinn sje vinstra megin,
en boginn dreginn yflr hinn endann. En aðgætandi er, að stóllinn
er nýlegur og að þetta fyrirkomulag kemur ekki heim við lýsingu Sig-
urðar Vigfússonar. Eðlilegast hefði verið, að stóllinn hefði verið nálægt
breiðari endanum og boginn dreginn rjett við hann, vinstra megin,
og mjórri endinn snúið til vinstri eins og þeir bræður segja lika, að
hann hafi verið látinn gera.
Á mynd, sem hjer fylgir með, sýnir Jakob Árnason hversu spilað
var á fiðlu Sigurðar bróður hans, að því er hann minnist. Stóllinn
er ekki hafður á (við mjórri endann), því að Jakob og Jón bróðir
hans hafa fullyrt, að stóll hafi enginn verið á fiðlu Sigurðar.—Ekki
er óhugsandi, að þessi nýlegi stóll sje af misskilningi eða misminni
gerður of lítill og að hann hefði að rjettu lagi átt að vera svo breið-
ur og hár, að hann væri mátulegur undir strenginn uálægt breiðari