Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Blaðsíða 15
11
endanura. En eins raiklar líkur eru til þess, að enginn stóll hafi
verið á fiðlu þessari fyrrum, úr því að fiðla Sigurðar, sem gerð hef-
ur verið að mestu í líkingu við þessa, var stóllaus.
Boginn, sem er hjer með á myndunum og Jakob heldur i hendi
sjer, tilheyrir langspili, sem er í Þjóðminjasafninu. Fiðlubogar hafa
verið af sömu gerð og þessi.
Getið var um hjer að framan i lýsingu á fiðlu Þjóðminjasafns-
ins, að 2 litlir lálúnskengir sjeu festir í yfirfjölina nálægt breiðari end-
anum, og ókunnugt tnlið, til hvers þeir hafi verið Jakob Arnason
minnist þess ekki, að slíkir kengir hafi verið á fiðlu Sigurðar bróð-
ur síns, en getur þess til, að fiðluboginn hafi með þeim verið festur
við fiðluna, öðrum enda hans smeygt undir band, er hnýtt hafi ver-
ið í þessa kengi; hversu hinum endanum hefur verið fest við er þá
óvíst, sennilega með bandi um hann og utan um fiðluna framan til.
Fiðlur þær, er Magnús Stephensen hefur sjeð og lýsir, virðast
ekki hafa verið með botni, en hvort þær hafi verið það, sem sjera
Helgi lýsir, er óvíst; sennilega hafa þær þó haft botn, eftir lýsingu
hans að dæma, enda í rauninni verið langspil, þótt fiðlur hjeti, ef
hann skýrir rjett frá Kelduhverfisfiðla sjera Bjarna er botnlaus.
Um Möðruvallafiðluna verður ekki sagt af myndinni, en þó mun
mega telja víst, samkvæmt því er áður var frá skýrt, að hún hafi
engan botn haít. Þjóðminjasafnsfiðlan er botnlaus. Það er því í
meira lagl ótrúlegt, að fiðla Sigurðar í Garðsauka hafi verið með
botni, svo sem Jón bróður hans minti. Hafi hún verið það, þá hef-
ur það verið nýbreytni (í líkingu við langspilin), eins og hitt, að
sauma hana saman í stað þess að negla. — Botnlaus átti ísleusk
fiðla víst að vera að rjettu lagi.
Á átjándu aldai' fiðlunum, er þeir v. Troil og M. St. lýsa, hafa
verið 1-2 strengir (úr hrosshári), á Kelduhverfis- og Möðruvallafiðl-
unum 2 strengir (úr látúni eða stálvír), á Garðsaukafiðlunni 4 (úr
girni) og Þjóðminjasafnsfiðlunni, sem mun aðallega hafa verið fyrir-
mynd hinnar síðast töldu, eru, svo sem áður var lýst, skrúfur í
hausnum nú fyrir 4 strengi, en naglar í gaflinum fyrir 6 strengi.
Þessi strengjafjöldi á henni og Garðsaukafiðlunni er að öllum lík-
indum nýbreytni, gerð í líkingu við fyrirkomulag á langspilum, sem
stundum voru með 4 strengjum, en oftast með 3, — eða máske öllu
heldur gerð í líkingu við fyrirkomulag á fiólínum, sem venjulegast
hafa 4 strengi; að eins afbrigði, svo sem Harðangursfiðlan, er með
fieiri strengjum (undirstrengjum), en hún er ekki mjög gömul, nje
önnur margstrengjuð hljóðfæri af svipaðri gerð, dregin með boga.