Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Síða 22
18
nú var sagt, og var sonur Þóris snepils, en faðir Þorgeirs goða var
nefndur enn hávi og var sonur Þóris Grímssonar gráfeldarmúla.
VI. Aftast í XXVII. kap (1. 122—23) hefur Guðmundur Þor-
láksson leiðrjett orðin »Einars Guðmundar bróður«, sem standa í öll-
um handritunum, í »Einars Járskeggjasonar* og í aths. neðan máis
tæpir hann á því, að þessi Einar Járnskeggjason, »þveræingr« nefnd-
ur í XXIV. kap., 139 l., hafi verið sonarson Einars gamla þveræings
Eyjólfssonar, bróður Guðmundar ríka. En ekki víkur Guðraundur
Þorláksson oftar að þessu og nefnir engan föður Járnskeggja þessa,
föður Einars, í nafnatalinu. Það yrði þó að teljast, að Járnskeggi faðir
Einars þveræings yngra hafi einmitt verið sonurEinars þveræings eldra,
þótt það væri ekki víst, sem það raunar er. En er Járnskeggja Einars-
sonar þá ekki getið í sögunni? Jú, að vísu. Járnskeggi, einnig nefndur
að eins Skeggi, er mjög riðinn við frásögnina í XXIX kap. Það hefur
þó ekki verið Guðmundi Ijóst, að Járnskeggi sá sje faðir Einars Járn-
skeggjasonar, því að hann segrr neðanmáls í aths. við orð Járn-
skeggja, sem sýna að söguritarinn lítur svo á, að hann sje skyldur
Möðrvellingum: »Járn-Skeggi þessi hefir þá átt að vera í ætt við
Möðruvellinga, en eigi vitum vér til að hans sé annars staðar getið
en hér«; og í nafnatalinu greinir hann tvo Járnskeggja, þennan og
föður Einars. Nú nær það vitanlega engri átt, að til hafi verið eða
að nefndir sje í sögunni tveir menn samtímis og náskyldir með
þessu sama einkenniiega, samsetta nafni. Það virðist ekki geta ver-
ið nokkur vafi á því, að Einar þveræingur yngri Járnskeggjason hafi
verið talinn, og það því auðvitað af söguritaranum einnig, sonur
Járnskeggja þess, sem riðinn er við frásögnina í XXIX. kap., og að
Járnskeggi þessí hafi verið son Einars Þveræings eldra. Þeir eru og
allir nefndir í Bandamannasögu, feðgarnir þrír, Einar, Járnskeggi og
Einar son hans.
VII. Nú skulu ekki gerðar fleiri atbugasemdir við ættartölur í
sögunni, en bent á það þrent af ýmsu fleira í nafnatalinu aftan við
greinda útgáfu af henni, að »Arnórr faðir Hallvarðar (sem sennilega
er villa fyrir Þórfinns) í Húsavík« er »Arnórr Þorgrimsson í Reykja-
hlíð«, að >Koðrán (f. Álfdísar)«, er Koðrán að Giljá, Eilífsson arnar
(sbr. Landnb.), og að Konáll faðir Einars, fóstra Guðmundar ríka, var
ekki Sokkason, heldur sonur Ketils hörzka, og voru þeir systkina-
synir Einar og Guðmundr. Konáll Sokkason var bróðursonarsonur
Einars; Sokki á Breiðamýri var sonur Þórðar Konálssonar, bróður
Einars (sbr Landnb.).