Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Side 31
27
7051. a8/10 Katrín Sveinsdóttir, Firði í Mjóafirði: Malkvöm
úr holóttu hraungrýti, mjög lítil, ætluð og notuð til
að mala í henni kaffi. Steinarnir eru 24 cm. að
þvermáli og báðir til samans II cm. að þykt. Járn-
standur er uppúr yfirsteininum útvið röndina og (nýr)
sauðarleggur á. Augað er 5 cm. að vidd; járnlöð yflr
það þvert neðaní steininum. I undirsteininum miðj-
um er járnstandur, sem stendur upp í gegnum löðina.
Utanum undirsteininn er járngjörð og stendur uppfyrir
hann og gengur upp með yfirsteininum. I röndina á
undirsteininum er höggvið skarð á einum stað fyrir
malaða kafflð að komast niðrum. Steinarnir liggja í
trogi úr trje, st. 32,7X27,7 cm , dýpt 3,7 cm., og stend-
ur það á 4 sívölum fótum; hæð 9 cm. undir trogið. Á
trogbotninum er gat, og á það að vera beint fyrir neð-
an skarðið í undirsteininum, svo að kafflð geti hrun-
ið niður úr troginu strax, og hefur líklega verið sett
ílát undir trogið til þess að láta kaffið fara í. — Var
áður í Hvassafelli i Eyjafirði og tilheyrði þar þá Gfuð-
rúnu Jónasdóttur, ömmu Katrínar. Virðist vera orðin
allgömul.
7052. 29/10 Eyjólfur Runólfsson, óðalsbóndi í Saurbæ á Kjalarnesi:
Fingurgull, 19 mm. að vídd og 3 að br., tvöfalt, hefur
máske verið slönguhringur í fyrstu, en nú er plata,
sporöskjulöguð, 8 — 11 mm. að þverm., kveikt yflr end-
ana; virðist hún yngri. Var áður eign móður gefand-
ans, Halldóru Olafsdóttur í Saurbæ, og hafði hún fengið
það 1834 að gjöf frá móðurbróður sínum, Þorláki presti
1 iOftssyni.
7053. 8l/10 Korp&ralghús úr rauðu flujeli (yfirborðið) og hvítu hör-
ljerefti, með pergamenti í milli, brytt með rósofnum
flujelsborða. í lögun sem taska, stærð 23X22 cra. Yfir-
borðið gengur yfir opið og myndar loku, sem hnept
hefur verið á undirborðið, en hnapparnir, sem hafa
verið saumaðir á það, eru nú af Efst á undirborðið
eru saumaðir stafirnir I I S og '2' fyrir neðan þá. Á
öll horn á yfirborðinu er fest silkiskúf hvítum og
rauðum, 4 cm. að þvermáli og ofan á hann drifnu 6
blaða blómi úr silfri, gyltu, þverm. 2,7 cm. Á miðju er
krans af smádoppum úr silfri, gyltum; þær eru 1,1 cm.
að þvermáli, en kransinn 13,7 cm. I honum er mynd