Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Síða 32
28
af Maríu, móður Jesú, og heldur hún á honum á vinstri
handlegg sjer. Hún hefur kórónu á höfði Þau virðast
brosa bæði. Glóríur eru um höfuð, grafnar á undir-
skjöld, sem annars gengur allur út í geisla (möndlu-
glóría). María stendur á nýmána og er hann með and-
liti í bugnum; hann er á grúfu Alt er þetta úr silfri
og gylt, 4,7 cm. að h. og 4 cm. að br. Fyrir neðan
eru 2 ógyltar silfurdoppur, þverm 1,5 cm. og þó smá-
doppa úr silfri, gylt, í milli þeirra, og ein hvoru megin
út frá henni, en uppi yfir eru 2 og fyrir ofan þær aft-
ur aðrar 3 slíkar smádoppur, allar eins og í kransinum,
sem er utan um alt saman. Hver doppa er eins og
7 smáskálar, 1 í miðju og 6 umhverfis. Líklega er á
þessu öllu enskt verk frá síðari hluta 15. aldar. — Frá
Grundarkirkju í Eyjafirði. Fylgdi jafnan hinum merka
• Grundar-kaleik, sem er nú i Vídalíns-safni. Má heita
mjög lítið skemt og er vandaður gripur. — Sbr. Kor-
póralshúsið frá Skálholtsdómkirkju (Árb 1909, bls. 50
til 51, m. mynd). — Tillagt Grundarkirkju af Þórunni
Jónsdóttur byskups Arasonar fyrir 1 hndr samkv. brjefi
(í brjefabók Guðbr. byskups) gerðu 1551.
7054. 8l/io Matthías Ásgeirsson, sveinn í Reykjavík: Ldtúmhnappur,
kringlóttur og hvelfdur, einfaldur, með upphleyptu
verki að ofan, þverm. 1,8 cm. Útlendur. Fundinn í
gömlum bæjarmoldum í Skriðu í Fljótsdal.
7055. a-d— Likkistuhöldur 5, snúnar járnhöldur, líkar kistilshöldum,
1. mismunandi, 7,2—9,7 cm. Þær leika í kengjum, sem
hafa verið reknir í kistuna og hafa gengið í gegnum
tinaðar járnþynnur, ferstrendar, 3,6 cm. að þvermáli;
af þeim fylgja 3. Ennfremur 4 járnnaglar slegnir, um
3 þuml. (8 cm.) langir. Loks 5 járngaddar, sem hafa
haldið saman borðunum í kistunni. - Kom þetta upp
úr Leirár-kirkjugarði um sumarið þ á., er grafinn var
þar Olafur Jónsson frá Geldingsá. Úr hvers líkkistu
þetta er verður ekki ákveðið; tilhsefulaus ágiskun, að
hjer hafi verið komið ofan á kistu Odds lögmanns Sig-
urðssonar. — Afh. af fornminjaverði.
7056. 4/ii Koparhjalla, lítil, þverm. neðst 17,4 cm, en 9 efst, h.
13,5 ctn. og halda upp af, h. 9 cm. Haldan er í lögun
sem skáhyrningur, br. 7.1 og þ. 1,5 cm. Ofan á hett-
unni er merki steyparans, B með þverstriki yfir legg-