Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Qupperneq 2

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Qupperneq 2
34 ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS m austur frá þili, 0,87 m frá miðlínu og 1,58 m frá útvegg. Hann er ávalur, ótilhögginn, þvermál 0,15 x 0,12 m. Næsti stafur, BSiIV er 1,58 m austar eða 6,58 m frá þili, 0,88 m frá miðlínu og 1,50 m frá útvegg. Hann er einnig ávalur og ótilhögginn, þvermál 0,14x0,12 m. Stafur, merktur BSiV, ætti að vera næst í röðinni, en hans sjást ekki ncin merki. Samt verður að gera ráð fyrir staf sunnan gólfsins and- spænis BNiV til þcss að standa undir brúnás, sem eðlilegast cr að þakið hafi hvílt á. Líklegur staður fyrir þann staf er stór steinn, þar sem gólfið þrengist. Hafi BSiV staðið þar, yrðu mál lians þessi: Fjarlægð frá BSiIV 1,89 m og frá þili 1,47 nr, frá miðlínu 0,58 m og frá útvegg 1,82 m. Auðvitað eru þessi mál ekki nákvæm, en ekki gctur munað öllu meira en svo sem 0,10 m til eða frá. Með öllu er óvíst um gildleika stafsins. Ekki hefði síður mátt vænta stafs öllu sunnar cða í bcinu franrhaldi af röðinni BSiI-IV til að bcra sama brúnás og þeir stafir, enda er á þeim slóðunr nóg grjót, sem gæti borið staf, en þó enginn steinn öðrum lík- legri og þcssarar stoðar sjást engin mcrki. Frá BSiV austur að gafli eru 2,60 m og verður að gera ráð fyrir staf á því bili og miðað við aðstæður helst austur við gaíl. Þar er líka steinn í frambrún sets, scm væri gott sæti fyrir innstaf, en hann cr þó í lengsta lagi frá miðlínu, 0,78 m. Ef til vill cr trúlegra að stafur hafi staðið á steini norðan við dyrakampshornið andspænis mjög eðlilegum stoðar- steini norðan dyra, þar sem hér á undan var gert ráð fyrir stafnum BNiVI. Hafi stafur staðið á þeim steininum, sem fyrr var talinn, verða málin fyrir staf þar merktan BSiVI þessi: Fjarlægð frá BSiV 2,51 m eða frá þili 10,98 m, frá miðlínu 0,78 m, frá útvegg 1,37 m eða frá dyra- kampi 0,14 m. Hafi stafurinn hins vegar staðið á steini norðan dyra- kampsins vestast í dyragangi verða málin þessi: Fjarlægð frá BSiV 2,89 m eða frá þili 11,31 m og frá miðlínu 0,55 m en aðeins 0,08 m norður frá kampinum. Svarar þessi síðari staða óneitanlega betur til BNiVI. Ljóst er að staða og mál austustu innstafa í B er vafasöm. Þilið vestan við B stefnir á útidyrakampinn 0,46 m austan við kamp- hornið, (cn að norðan aðeins 0,06 m austan við kamphornið þar). Vestan við þilið að sunnan er ferstrendur stallur eða lægð í gólfið og aðeins þar virðist stafurinn BSúO hafa staðið og þá hefur þilið fallið að austurhlið hans. Eftir stallinum að dærna hefði þvermál stafsins getað verið í mesta lagi 0,20 x 0,20 m. Fjarlægð hans frá miðlínu 2,30 m og frá suðurvegg 0,15 m. Nokkru gctur skakkað á þessum málum. BSúI hefur staðið 1,68 m austan við þilið. Sá stafur hefur staðið í 0,30 m djúpri ferhyrndri þró, 0,20 x 0,20 m í þvermál og raðað steinum að

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.