Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Blaðsíða 3
KÚABÓT I' ÁLFTAVERI I________________________________________________35
honum. Fjarlægð frá miðlínu 2,40 m, cn frá útvcgg 0,10 m. Fjarlægð
frá BSiI (setbreiddin) 1,58 m.
Næsti stafur, BSúII, hcfur staðið í samskonar þró, 1,83 m austar eða
3,51 m frá þili. Mál þróarinnar cru 0,24 x 0,16 m og stafurinn gæti hafa
fyllt út í hana. Að stafnum hcfur verið raðað steinum. Fjarlægð frá
miðlínu cr 2,42 m, frá útvegg 0,08 m og frá BSiII 1,55 m.
Næsti stafur hefur staðið í samskonar þró, svo scm 0,20 m djúpri og
með hellublöðum í botni. Stafurinn, sem merktur er BSúIII var 1,46 m
austan við BSÚII, eða 4,97 m frá þili, 2,34 m frá miðlínu, 0,11 m frá
útvegg, fjarlægð frá BSiIII, setbreiddin, er 1,47 m. Hafi stafurinn fyllt
út í þróna, scm hann stóð í, hcfur þvermál hans verið 0,33 m A-V og
0,20 m N-S.
Næsti stafur, BSúIV, hefur ekki staðið í þró, cn þar sem hans var að
vænta cru stcinar í gólfi, sem benda eindregið til að þar hafi stafurinn
verið. Þá cru málin þessi: Frá BSúIII 1,63 m eða frá þili 6,60 m, frá
miðlínu 2,25 m og frá útvegg svo sem 0,13 m og setbrciddin 1,37 m.
Öll eru þessi mál ónákvæm og gildlciki stafsins mcð öllu óþckktur.
Næsta stafs, BSúV, mátti vænta þar á móts við, sem gólfið mjókkar
og cinmitt þar eru steinar á setinu út við vegg á líkan hátt og eru undir
BSúIV. Út frá þeim má ráða í mál stafsins BSúV. Fjarlægð frá næstu
stoð 1,80 m eða frá þili 8,40 m, frá miðlínu 2,25 m og frá útvegg um
það bil 0,15 m. Þá fæst setbrciddin 1,67 m. Gildleiki stafsins er óþekkt-
ur og öll mál ónákvæm.
Loks var að vænta stafs í SA-horni B enda er þar vænn steinn, sem
ætla má að hafi verið settur undir staf. Þá má gera ráð fyrir að mál frá
BSúVI hafi verið þcssi: Fjarlægð frá næsta staf 2,64 m eða frá þili 11,04
m og frá miðlínu 1,96 m, frá suðurvegg 0,19 m og frá BSiVI 1,18 m
hafi sá stafur staðið vestan við kamphornið, en 1,41 m ef hann hefur
staðið norðan við það. Auðvitað eru þessi mál ótraust og ekki verður
ráðið í gildleika hornstafsins.
Hér að framan hefur verið leitast við að lýsa flcstu því, sem athygl-
isvert hefur þótt í skálatóttinni (B) og fylgja hér á eftir fáein ályktun-
arorð. Gólfinu hefur vcrið lýst nokkuð hér á undan. Austast cr það sem
framhald af gólfi í stofudyrum og álíka breitt og það, úr venjulegri
harðtroðinni gólfskán, grárri, og voru engin kol í henni. Það er augljóst
að ekki hcfur cldur verið kyntur á þessu gólfi, enda sáust þess cngin
önnur mcrki og ekkert eldstæði var þar að finna. Austast var gólfið um
0,85 m brcitt, en þcgar kom nær 3 m frá stofudyrunum breikkaði það
og var úr því nálægt 1,25 m breitt vestur að þili.
Báðum megin gólfsins voru pallar rnilli þess og veggjanna allt að 0,45