Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Blaðsíða 20
52
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Mynd 18. Séð inn í norðurhluta salernis. Á miðri mynd cr stórt steinker, nr. 4012. Vindauga var
í gegnum norðurvegginn. Ljósm. Císli Gestsson. Fig. 18. The northern part of the lavatory. A
big vessel qf stone is in the middle of the picture. A drain was through the northern wall. Photo
Gísli Gestsson.
í allri tóttinni var nokkuð af grjóti og innst í göngunum var mikið
niðurfallið torf. Það sem eftir var af veggjum tóttarinnar var hlaðið úr
grjóti. Húsið hefur snúið norður-suður og verið 2,5 m á breidd þar sem
það var breiðast sunnan við miðju, en nyrst var það 2,2 m. Upphaflega
hefur það verið 4,8 m á lengd, en stytt síðar með þvervegg um 1,3 m,
enda hvarf neðra gólf, sem í húsinu var, undir hinn nýja suðurgafl.
Vindauga var gegnum norðurgaflinn, var það 0,55—0,8 m á breidd og
1,8 m á þykkt eða eins og veggjarþykktin. Frá vindauganu að utan var