Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Page 23

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Page 23
GUÐRÚN SVEINBJARNARDÓTTIR KÚABÓT í ÁLFTAVERI V I Nyrst og vestast á rústasvæðinu er lítil, niðurgrafin rúst, sem vísar u.þ.b. í austur-vestur. Hefur vesturendi hennar greinilega eyðst af vatns- elgnum. Er rústin opin út til vesturs og var innanmál hennar 4 m. Hún hefur þó verið lengri því leifar af suðurveggnum ná 2—3 m lengra til vesturs. Þarna í jaðrinum fundust m.a. illa farin bein og trjáleifar. Breidd tóttarinnar var 3,3-3,5 m. Hún var grafin inn í hólinn þannig, að austurgaflinn var hæstur. Hann var varðveittur allt upp í 1,20 m hæð. Veggirnir voru einföld hleðsla af stóru grjóti með torfi á milli og lækkuðu til vesturs. Torflag var ofan á suðurveggnum. Húsið var fullt af sandi, en þó sá móta fyrir útlínum þess af efstu veggjasteinum fyrir uppgröft. Snið var gert þvert yfir rústina 1 m frá vesturenda hennar. Sýnir það sandfyllinguna með moldar- og leir- flögum í. Gólflagið var dökkbrún mold að meðaltali 8—10 cm þykkt. í því fundust bein, kolamolar, trjá- og jurtaleifar. Yfir því voru tvö aðskilin járnútfellingarlög, örþunn og hörð. Hafa þau sjálfsagt myndast við vatnságanginn, er húsin urðu fyrir flóðinu. Mjög erfitt var að fylgja gólflaginu og náði það ekki alveg upp að veggjum þar sem mikið var af grjóti og jarðvegur gljúpur. Það sem þar kom upp bendir jafnvel til þess að þarna hafi verið torf í gólfi. Um 0,2 m frá norðurveggnum gætu lóðréttar trjáleifar í sniðinu bent til stoðarleifa. Einu fundirnir í húsinu voru nokkur húsdýrabein og tennur, auk viðarleifa. Ógerningur er að segja til um notkun þessa húss með neinni vissu af því sem í því fannst. Þó virðist það örugglega liafa verið einhvers konar útihús. Snið var gert í framhaldi af þversniðinu til suðurs, alveg að norðvest- urhorni J, til þess að kanna gerð veggja. í því kemur fram að innri brún veggja í báðum húsum er úr mold með torf að baki. Auk þess kom í ljós einföld grjóthleðsla út úr horni húss J, sem gæti bent til eldri byggðaleifa á staðnum.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.